Samræmd próf í 4. og 7. bekk
18. og 19. október eru hin árlegu samræmdu próf í 4. og 7. bekk í íslesnku og stærðfræði. Í grunnskólanum leggjum við áherslu á að skólastarf riðlist sem minnst vegna prófanna og það eina sem í raun breytist er að valtími fellur niður á fimmtudegi. Við lítum fyrst og fremst á samræmdu prófin sem könnunarpróf fyrir okkur starfsfólk skólanna. Við notum þau til að hjálpa okkur við að greina veikar og sterkar hliðar nemenda í þessum greinum en um aðra stöðu nemenda segja þau ekkert. Þess vegna er mikilvægt að nemendur líti á prófin sem hvert annað skólastarf, hvorki merkilegra né ómerkilegra og í þeim sem allstaðar annarsstaðar gerir maður sitt besta.
Niðurstöður samræmdra prófa koma oftast í lok nóvember og fá nemendur og foreldrar þær niðurstöður.



