Fréttir Grunnskóli
mynd08
mynd08
Fjarðarball 07
Mynd 3 af 7
1 2 3 4 5 6 7

10. bekkur á Fjarðarball

15.10.2007

Þann 13. október sl. skellti 10. bekkur sér á Fjarðarball austur á Eskifjörð. Kl. 16:30 að staðartíma lögðum við í hann, á vit ævintýranna, galvösk og glöð í okkar fínasta pússi (hér um bil). Misjafnt ástand var á okkur, sumir með matareitrun (samt ekki eftir laxerolíu eins og fyrir sunnan), aðrir þreyttir eða bílveikir...  Flest vorum við samt nýklippt, hress og spennt.


Þegar við vorum komin langleiðina á Eskifjörð stoppuðum við á Stöðvarfirði og við stelpurnar hrúguðum okkur inn á stelpuklósettið og reyndar líka strákaklósettið til að gera okkur sætar og fínar fyrir Austfirðingana. Upprunalega var samt stoppað til að fá sér að borða svo auðvitað fengu við okkur að borða líka. Við stelpurnar heimtuðum að mæta "fashionably late" á staðinn (ballið átti að byrja kl 21:00 við vildum mæta 21:15 eða svo) en í staðinn mættum við hálftíma fyrr svo það var lítið hægt að gera annað en að rúnta um Eskifjörð og bíða eftir að Valhöll opnaði. En við stelpurnar gerðum okkur lítið fyrir og héldum áfram að gera okkur fínar svona okkur til skemmtunar.


Þegar búið var að brýna fyrir okkur reglurnar fengu allir að fara inn nema nokkrar stelpur út af óhlýðni. En við létum það nú ekki á okkur fá, tókum bara upp penslana og héldum áfram að gera okkur fínar eina ferðina enn ( mikið hvað maður getur alltaf verið að mála sig).


Loksins byrjaði svo ballið eða reyndar með diskóteki til kl 10 þá stigu hinir kyngimögnuðu Daltonar á svið. Mjög góðir að mínu mati. Við Hornfirðingarnir létum okkur nú ekki vanta á dansgólfið þegar lög eins og Twist and shout og Íslenskir Karlmenn komu. Þannig var mál með vexti að þegar Twist and shout kom stilltum við okkur upp í stóran hring og twistuðum alveg útí eitt (takk afi fyrir að hafa kennt mér að twista!). Einnig var haldin twist keppni og hana vann stelpa frá okkur að nafni Alexandra betur þekkt sem Saska og hún fór uppá svið að sína hæfileika sína, enda eru þeir all nokkrir. Svo þegar Íslenskir Karlmenn (þekkt lag með Stuðmönnum fyrir þá sem ekki kveikja á perunni) kom stilltum við stelpurnar frá Höfn okkur upp í eina stóra línu og dönsuðum viðeigandi dans með. Einnig þegar Killing in the name off kom þá var nú tekinn Hornfirðinga dansinn eins og við krakkarnir kjósum að kalla hann núna. Þegar hann kláraðist um eitt leytið var ballið flautað af og haldið heim á leið. Í rútunni var svo mest alla leiðina þögn og flestir sofandi enda mikið búið að dansa og syngja síðustu klukkutímana. Um 5 leytið var svo rennt inní bæinn og okkur skilað heim.

Takk æðislega fyrir gott ball og góða stemmningu krakkar :-)

-Iðunn Tara Ásgrímsdóttir, formaður nemendaráðs og ánægður 10. bekkingur!

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica