Líf og fjör í Lengdri viðveru
Það er sannarlega líf og fjör hjá yngstu krökkunum í Grunnskóla Hornafjarðar. Fyrir utan að þau eru á fullu frá því snemma á morgnana í hefðbundinni skólagöngu mæta mörg þeirra í lengda viðveru sem er til húsa í Hafnarskólanum gamla.
Þessi þjónusta er til reiðu frá klukkan 13.40 - 17.00 og um 20 börn dvelja þar samtals á hverjum virkum degi. Lengd viðvera er hugsuð fyrir börn á aldrinum sex til níu ára auk þess sem skólabörn úr sveitunum hér í Hornafirði bíða þar eftir að skólabíllinn komi og aki hverjum og einum til síns heima.
Það er Jónína Aðalbjörg Baldvinsdóttir stuðningsfulltrúi (hér kölluð Alla), sem stjórnar starfinu af röggsemi. Auk þess eru fjórir aðrir stuðningsfulltrúar henni til halds og trausts
Þau börn sem vilja ljúka heimavinnunni gera það hér og fá til þess aðstoð . Þá er lesið upphátt, reiknað og skrifað eftir forskrift. Börnin eru auk þessa einstaklega dugleg við að teikna og lita myndir af stakri snilld. Þegar komið er í lengdu viðveruna fá allir ávaxtabita. Síðar fá allir hressingu sem er smurt brauð og ísköld mjólk auk ávaxta. Þá er tekið vel til matar síns því þessir krakkar hafa góða matarlyst .
Inni í leikherberginu eru margir stórir púðar og pullur sem tilvaldir eru til að byggja traust virki, en það er nauðsynlegt á svona stað því ótrúlegustu skrímsli og aðar forynjur geta leynst frammi á gangi og jafnvel í gluggatjöldum um hábjartan dag! Þá er mikilvægt að láta ekki nappa sig og sjá við öllum þeirra brögðum. Á skólalóðinni eru líka skemmtileg leiktæki sem duglegair krakkar mega til að prófa og samtímis þroska hug og hönd.



