Föstudagshátíð
Föstudaginn 5. október var haldin fyrsta föstudagshátíð vetrarins í Nesjaskóla.
Það var 3. B sem reið á vaðið með flutningi á söngleik sem fjallaði um Þursinn í Ketillaugarfjalli auk þess sem nemendur fluttu nokkra skemmtilega brandara.
Hátíðin tókst að venju mjög vel og skoraði 3. B á 3.S að halda næstu hátíð.



