Fréttir Grunnskóli

oktober07_1_bekkur_itrottahus_005

1. bekkur í heimsókn á Krakkakot - 08.10.2007 Fréttir Grunnskóli

Fimmtudaginn 4. október brá 1. bekkur undir sig betri fætinum og fór í heimsókn á Krakkakot. Heimsóknin er liður í samstarfi á milli skólanna sem kallast Brúum bilið. Það er gaman fyrir börnin að koma í heimsókn í sinn gamla skóla að hitta vini og starfsmenn sem tóku vel á móti hinum nýju grunnskólanemum. Það var glatt á hjalla og tíminn leið hratt við leik og störf. En þegar komið var til baka inn í skóla var tekið til við að læra sem 1. bekkingar stunda nú af kappi þessa dagana. Lesa meira
 
Fostudagshatid_3_B_5_okt

Föstudagshátíð - 08.10.2007 Fréttir Grunnskóli

Föstudaginn 5. október var haldin fyrsta föstudagshátíð vetrarins í Nesjaskóla. Það var 3. B sem reið á vaðið með flutningi á söngleik sem fjallaði um Þursinn í Ketillaugarfjalli auk þess sem nemendur fluttu nokkra skemmtilega brandara. Hátíðin tókst að venju mjög vel og skoraði 3. B á 3.S að halda næstu hátíð. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica