Fréttir Grunnskóli
busun_07_(5)
busun_07_(5)
Mynd 5 af 5
1 2 3 4 5

Nýnemahátíð hjá efstastigi grunnskólans

21.09.2007

Fimmtudaginn 20.september var hin árlega nýnemahátíð haldin hjá 8. ? 10. bekk. Hefðbundin kennsla var fram að hádegi. Eftir hádegishlé var haldið í íþróttahúsið þar sem nýnemar, þ.e.a.s. nemendur í 8.bekk voru boðnir velkomnir í skólann á viðeigandi hátt. Keppt var í hinum ýmsu greinum og var greinilega ætlunin að nemendur í 8.bekk töpuðu sem flestum keppnum. Nýnemar stóðu sig einstaklega vel og ef öllu réttlæti hefði verið fullnægt þá hefðu þeir staðið uppi sem sigurvegarar! Skemmtunin í íþróttahúsinu var krökkunum til mikils sóma, en þetta var samt bara upphafið á enn betri degi. Um kvöldið var nefnilega matur, skemmtun og dansleikur í Mánagarði.

Skemmtunin í Mánagarði hófst kl. 20:00 með borðhaldi og skemmtidagskrá og að því loknu spilaði hljómsveitin Parket til miðnættis. Kvöldið tókst mjög vel og skemmtu allir sér vel. Til gamans má nefna að nemendur í 8. ? 10. bekk eru 103 og af þeim mættu 92 og hátíðina. Auk þess mættu tveir brott fluttir nemendur og tveir nemendur úr 8.bekk Grunnskólans í Öræfum.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica