Nemendaráð 6. – 10. bekkjar
Í nýjum grunnskólalögum sem samþykkt voru á síðasta ári er kveðið á um að í hverjum skóla skuli skipað nemendaráð þar sem sitji a.m.k. einn fulltrúi nemenda í hverjum árgangi í 6. ? 10. bekk sem nemendur velja sjálfir. Í Grunnskóla Hornafjarðar hefur nú verið kosið í nemendaráð og var ákveðið að tveir nemendur yrðu kosnir í hverjum árgangi. Nýskipað nemendaráð sat sinn fyrsta fund fimmtudaginn 13. september fyrir utan fulltrúa 6. bekkjar. Fyrsta verk nýrrar nefndar var að skipta með sér verkum og er stjórnin eftirfarandi:
Iðunn Tara Ásgrímsdóttir 10. Á, formaður
Sveinbjörg Zophoníasdóttir 10. R, varaformaður
Dóra Björg Björnsdóttir 7. R, ritari
Hannes Halldórsson 9. I
Hjördís Lilja Pálsdóttir 9. A
Kolbrún Birna Ólafsdóttir 8. G
Ingólfur Waage Jónsson 8. H
Vigdís María Borgarsdóttir 7. K
Ármann Örn Friðriksson 6. E
Agnar Jökull Imsland 6. E
Samkvæmt lögum skal nemendaráð m.a. vinna að félags-, hagsmuna- og velferðarmálum nemenda og skal skólastjóri sjá til þess að ráðið fái aðstoð eftir þörfum. Nemendaráð skal fá skólanámskrá til umsagnar og aðrar áætlanir er varða skólahaldið. Nemendaráð skal jafnfram fá til umsagnar fyrirhugaðar meiri háttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skóla áður en endanleg ákvörðun um þær er tekin.
Ljóst er að eitt af stærstu verkefnum nýs nemendaráðs verður að koma að vinnu starfshóps um félagslíf grunnskólanemenda sem skila skal áliti fyrir lok janúar á næsta ári. Eygló Illugadóttir starfar með nemendaráði fyrir hönd starfsmanna.



