Fréttir Grunnskóli
Skolasetning_07_002
Skolasetning_07_002
Skólasetning 2007
Mynd 1 af 5
1 2 3 4 5

Foreldrafélag Grunnskóla Hornafjarðar

17.09.2007

Fyrsti fundur í sameinuðu foreldrafélagi grunnskóla Hornafjarðar var haldinn þriðjudaginn 11. september. Foreldrafélagið er fyrir foreldra nemenda í 1. ? 10. bekk. Á fundinn mættu Gauti Árnason og kynnti á starfsemi foreldraráðs ásamt Nönnu Dóru Ragnarsdóttur sem sagði frá starfsemi foreldrafélags Hafnarskóla s.l. ár. Ný stjórn var skipuð og eru aðalmenn: Konný Guðmundsdóttir, Erla Berglind Antonsdóttir og Anna Kristín Hauksdóttir. Varamenn eru Sólveig María Hauksdóttir og Jóna Bára Jónsdóttir.

Mæting bekkjartengla var mjög góð og miklar og góðar umræður spunnust um starf og hlutverk foreldrafélaga. Hvernig hægt væri að efla starfsemi foreldrafélagsins og nauðsyn þess að hafa sterkt og öflugt foreldrafélag. Sterkt og öflugt foreldrafélag skilar sér í betra andrúmslofti innan sem utan veggja skólans.
Bekkjartengla vantar í 9. og 10. bekk og biðjum við áhugasama foreldra sem eru til í að taka þátt í foreldrasamstarfi láti Eygló vita.
Starfshópur hefur verið settur á laggirnar um úttekt og tillögur er varða félagslíf grunnskólanema. Í starfshópnum eiga sæti fimm aðilar og er einn af þeim skipaður af foreldrafélagi grunnskólans. Á fundinum var Gauti Árnason kosinn fulltrúi foreldra. Hlutverk starfshópsins er að koma með tillögur og hugmyndir um með hvaða hætti félagslífi grunnskólanemenda í sveitarfélagsinu verði best fyrir komið og um leið gerð samantekt á núverandi fyrirkomulagi. Nefndin skal ljúka störfum og skila tillögum fyrir 31. janúar 2008.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica