Frí í grunnskólanum föstudaginn 14. september
Við minnum á að það er frí hjá nemendum á föstudag vegna skipulagsdags hjá kennurum. Þennan dag fara kennarar á haustþing kennara á Austurlandi sem haldið er á Djúpavogi.
Lengda viðveran er einnig lokuð föstudaginn 14. september vegna námskeiðs starfsfólks. Það námskeið er á vegum Afls starfsgreinasambands og er haldið á Breiðdalsvík.



