Fréttir Grunnskóli
Teir_sem_komust_afram_i_nyskopunarkeppninni_2007
Teir_sem_komust_afram_i_nyskopunarkeppninni_2007
Mynd 1 af 2
1 2

Nýsköpunarkeppni grunnskóla

29.08.2007


Síðustu ár hefur Eiríkur Hansson kennt nýsköpun í 4. og 5. bekk grunnskólans við góðan orðstýr. Afraksturinn hefur skilað sér vel til skólans og flest árin hafa nokkrir nemendur komist áfram í keppninnai og farið í vinnusmiðju til Reykjavíkur.  Í fyrra var skólinn svo tilnefndur sem nýsköpunarskóli ársins og vorum við afar stolt af þeirri tilnefningu og geymum bikarinn þetta árið með glöðu geði.

Í ár komust fjórir keppendur áfram og gefst þeim kostur á að fara í vinnusmiðju til Reykjavíkur 8. september næstkomandi þar sem þeir vinna frekar með sínar hugmyndir.   Þessir nemendur eru Kristófer Laufar Hansson, Heiðdís Anna Marteinsdóttir, Sædís Harpa Stefánsdóttir og María Hjördís Karlsdóttir.
Það er okkar trú að kennsla í nýsköpun og sá frumleiki sem nemendur fá að sýna við koma með lausnir eða uppfinningar sem nýtast í nánast umhverfi skili sér til samfélagsins í framtíðinni.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica