Fréttir Grunnskóli
Skolasetning_07_016
Skolasetning_07_016
Mynd 1 af 6
1 2 3 4 5 6

Fjölmenni við skólasetningu Grunnskólans

24.08.2007

Mikið fjölmenni var við setningu Grunnskóla Hornafjarðar í dag. Athöfnin hófst í íþróttahúsinu á Höfn þar sem skólastjórarnir þrír sögðu nokkur orð við allan hópinn. Að því loknu fór hver bekkur í sína stofu. Það var stutt að fara fyrir elstu nemendurna sem einungis þurftur að fara yfir ganginn inn í Heppuskóla og ekki mikið lengra fyrir miðstigið að tölta niður í Hafnarskóla. En nemendur á yngsta stigi þurftu að sjálsögðu bílferð inn í Nesjaskóla.
Erfiðlega hefur gengið að ráða kennara fyrir þetta skólaárið og var m.a. gripið til þess ráðs að sameina bekki í tveimur árgöngum 4. og 6. bekk auk þess sem ein bekkjardeild er í 1. bekk. Með þessum ráðstöfunum er nú fullráðið við grunnskólann og koma 62 starfsmenn að grunnskólanum með einum eða öðrum hætti. Margir í fullu starfi en einnig nokkrir í hlutastarfi, stundakennslu, ritarastörfum, húsvörslu og fleiru,

Nemendur eru í dag 330. 178 drengir og 152 stúlkur. Bekkjardeildirnar eru 17 og er þetta í fyrsta skipti í nokkuð mörg ár sem bekkjardeildirnar eru undir 20.

Veðrið á skólasetningunni var með eindæmum gott og höfðu nokkrir kennarar á orði að hægt væri að hafa skólasetningu utandyra því það væri alltaf svo gott veður þennan dag. Starfsfólk grunnskólans væntir góðs starfsárs og hlakkar til að hefja vetrarstarfið með nemendum og foreldrum.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica