Fréttir Grunnskóli
Namskeid_agust_07_006
Namskeid_agust_07_006
Mynd 1 af 5
1 2 3 4 5

Góð mæting á námskeið um uppbyggingarstefnuna

23.08.2007

Um 80 manns sátu námskeið um Uppeldi til ábyrgðar (restitution) á vegum skólaskrifstofu Hornafjarðar 15. og 16. ágúst. Námskeiðið sóttu starfsmenn leikskóla, grunnskóla og íþróttamiðstöðvar og var almenn ánægja hjá þátttakendum. Námskeiðið fjallaði um leiðir til að auka ábyrgð fólks á eigin lífi og stuðla að meiri ánægju í lífinu. Á næstu vikum ætla þeir sem á námskeiðinu voru að æfa sig að nota þessar uppeldiskenningar og kenna þær og kynna fyrir nemendum og foreldrum. Aðalfyrirlesari á námskeiðinu var Diane Gossen en héðan fór hún til Reykjavíkur og síðan Ísafjarðar þar sem hún heldur þrjú önnur námskeið. Með henni var Hildur Karlsdóttir kennari sem sérhæfir sig nú í því halda námskeið um Uppeldi til ábyrgðar.

Þegar svo stór hópur sækir sama námskeiðið má ætla að það skili meiri árangri og því verður gaman að fylgjast með því hvort okkur tekst að sá fræjum uppbyggingarstefnunnar hér á næstu misserum.

Hægt er að nálgast ýmsar upplýsingar um efni námskeiðsins og þá stefnu sem það byggir á www.sunnuhvoll.com.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica