Grunnskóli Hornafjarðar
Sameinaður grunnskóli tekur til starfa.
1. ágúst var fyrsti dagur í ný sameinuðum grunnskóla, Grunnskóla Hornafjarðar. Skólastarfið er þó með rólegra móti fyrstu dagana enda flestir í sumarfríi enn og undirbúningur fyrir unglingalandsmót í algleymingi. Eftir verslunarmannahelgi færist svo líf í skólana. Eins og flestum er kunnugt samþykkti skólanefnd nýja skólastefnu um síðustu áramót þar sem ákveðið var að sameina yfirstjórn í Nesjaskóla, Hafnarskóla og Heppuskóla. Í staðinn fyrir þrjár sjálfstæðar stofnanir verður um einn skóla að ræða með einni stjórn. Guðmundur, Þorvaldur og Þórgunnur sem verið hafa skólastjórar mynda nú einskonar skólastjórn og auk þess að vera hvert á sínu skólastiginu þá munu þau einnig skipta með sér verkum. Þorvaldur sér um starfsmannamálin í öllum grunnskólanum, Guðmundur Ingi um fjármálin og í Þórgunnar faglegu málin.
Auk þeirra þriggja verða við stjórnvölin Magnús J. Magnússon sem verður deildarstjóri sérkennslu í öllum grunnskólanum og Eygló Illugadóttir sem verður deildarstjóri skólanámsskrár, sjálfsmats og ýmissa sérverkefna sem nóg er af og leggja þarf sérstaka rækt við í tengslum við þessar breytingar. Þau Eygló og Magnús verða eins og skólastjórarnir þrír starfandi á öllum skólastigum en þau tvö ætla líka að skipta á skrifstofum. Eygló fer upp í Heppuskóla og Magnús kemur niður í Hafnarskóla.
Í dag opnar ný heimasíða fyrir grunnskólann og er ætlunin að fólk geti nálgast þar allar helstu upplýsingar um skólann. Til að byrja með vantar þó eitthvað efni en vonandi kemur það allt á næstu dögum eða vikum.
Síðustu mánuði hafa stjórnendur skólanna ásamt starfsmönnum unnið einhuga að undirbúningi fyrir sameininguna sem nú hefur litið dagsins ljós og er það von þeirra að vel megi takast til.



