Skíðaferð og árshátíð
Á miðvikudaginn í síðustu viku tóku nemendur í 10.bekk Heppuskóla síðasta samræmda-prófið. Sama dag hélt síðan hópurinn í ferðalag upp á jökul þar sem þau skemmtu sér á skíðum, sleðum og snjóbrettum að deginum en skemmtu síðan hvert öðru í skálanum er kvölda tók. Hópurinn fékk frábært veður og færi og ekki spillti þjónustan sem þau fengu í Jöklaseli fyrir ánægjunni. Komið var af jökli uppúr hádegi á föstudag. Á föstudagskvöldið var síðan árshátíð skólans haldinn að Hrollaugsstöðum í samvinnu við Þrykkjuna.
Fjórir fílefldir feður sáu um að grilla og framreiða dýrindis máltíð fyrir krakkana. Þegar allir höfðu lokið við kræsingarnar hófst skemmtun og síðan dansleikur með hljómsveitinni Parket. Ferðin á jökul sem og árshátíðin var krökkunum til mikils sóma og eiga þau heiður skilinn.



