Beint í leiðarkerfi vefsins.
„Komdu og skoðaðu himingeiminn“ heitir verkefnið sem 3. bekkur hefur unnið að undanfarnar vikur. Í verkefninu er leitast við að láta börnin öðlast skilning og yfirsýn yfir alheiminn sem samþætt kerfi.
Lesa meira
Núna er breytingar á neðri hæð Heppuskóla komnar í fullan gang. Verkinu á að vera lokið fyrir skólabyrjun í haust. Nemendur í 10. bekk hafa flutt sig um set og nema nú fræðin í FAS en aðrir bekkir eru eftir sem áður í Heppuskóla.
Lesa meira
4. E í Grunnskólanum fór í heimsókn í Ekruna á síðasta þriðjudag og höfðu mjög gaman að. Eldri borgarar í dagvistinni kenndu krökkunum að búa til gjafakort eins og þau hafa gert um nokkuð skeið og fóru allir heim með kortin sín sælir og glaðir.
Lesa meira
4. H hélt síðustu vikuhátíð vetrarins í Sindrabæ nú í byrjun maí. Krakkarnir voru með skemmtilega og fjölbreytta dagskrá en þar flutti Ingunn Ósk frumsamin ljóð, Sindri Blær las frumsamda örsögu, allir nemendur bekkjarins tóku þátt í leikriti sem heitir Greindarprófið,
Lesa meira
Miðvikudaginn 9.maí fór 2.bekkur að skoða svínabúið hjá Pálínu og Sævari á Miðskeri. Þar sáum við fullt af svínum og grísum af hinum ýmsu stærðum og gerðum.
Krakkarnir í 5. M hafa ekki setið auðum höndum í vetur . Fimmtudaginn 10. maí var foreldrum boðið að sjá afrakstur verkefna sem unnin hafa verið að í ýmsum greinum.
Lesa meira
Í gær var síðasti fundur skólaráðs á þessu skólaári en nýtt skólaráð verður kosið að hluta næsta haust. Hlutverk skólaráðs er mikilvægt því það kemur að öllum meiriháttar ákvörðunum innan skólans og er umsagnaraðili um skólastarfið almennt
Lesa meira
Bæklingi fyrir valgreinar á næsta skólaári hefur verið dreift til nemenda í 7. – 10. bekk og kennir þar margra grasa og má með sanni segja að nemendur fái úr mörgu að velja á næsta skólaári. Reynt er að hafa valið sem fjölbreyttast og þannig uppsett að það höfði til sem flestra og allir fái val við hæfi.
Lesa meira
Á mánudaginn fékk Grunnskóli Hornafjarðar góða heimsókn. Guðrún Helga Bjarnadóttir frá samtökunum Blátt áfram kom til okkar og hélt fyrirlestra fyrir nemendur í 5. – 10. bekk. Alls voru lífsleikni tímarnir 6 þar sem nemendum var skipt upp í hópa, eftir bekkjum og kyni.
Lesa meira
Í liðinni viku fór 4. H í heimsókn í dagvist aldraðra. Krakkarnir kynntu þar verkefni sem þau hafa unnið í vetur um Móse og ferð Ísraelsmanna yfir eyðimörkina. Heimsóknin hófst á kynningu þar sem við spjölluðum um ættir okkar og uppruna og reyndum að finna út hvort einhverjir væru skyldir hver öðrum. Áður höfðu krakkarnir í 4 E farið í heimsókn og fara aftur næsta þriðjudag. Þetta var afar skemmtilegt og við hlökkum til að koma aftur.
Lesa meirajanúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember