Skinney-Þinganes
Skinney-Þinganes
Fyrirtækið rekur saltfiskverkun allt árið, humarfrystingu, loðnufrystingu og síldarfrystingu, -söltun og -niðurlagningu. Við þessa starfsemi vinna 85-100 manns. Auk þess er starfrækt bolfiskfrysting á Reyðarfirði með 35- 40 starfsmönnum. Félagið á sjö fiskiskip með 60-70 manna áhöfn alls og er því heildarfjöldi starfsmanna yfirleitt á bilinu 180-210. Skipunum tilheyrir um 7.500 tonna kvóti í þorskígildum talið, þar af er 2.600 tonn þorskur. Félagið fær úthlutað um 17% humarkvótans, álíka stóran hluta síldarkvótans og um 3% loðnukvótans.
- Heimilisfang: Krosseyjarvegi 11
- 780 Hornafirði
- Sími: 470 8100
- Fax: 470 8101
- Netfang: sth@sth.is
- Heimasíða: www.sth.is