Fyrirtækjaskrá

Norðurljósablús
Norðurljósablús

Hornfirska skemmtifélagið

Hornfirska skemmtifélag eru samtök áhugafólks og hefur m.a. staðið fyrir tvennskonar skemmtunum á ári; haustskemmtun í samstarfi við Hótel Höfn og blúshátíð í mars.
Hornfirska skemmtifélagið hefur undanfarin haust efnt til tónlistarveislu að hausti í samvinnu við Hótel Höfn síðan 2002. Sýningarnar eru margrómaðar og hafa gengið fyrir fullu húsi í 2 mánuði.  Félagið hefur einnig haft það markmið að skapa tækifæri fyrir söngvara og hljóðfæraleikara á staðnum til að koma fram og hjálpa þessu listafólki að þroskast með námskeiðahaldi.
Hornfirska skemmtifélagið hefur einnig í samvinnu við veitingaaðila á Höfn, haft veg og vanda að Norðurljósablúsi fyrstu helgina í mars síðan 2006. Á Blúshátíð eru tónleikar haldnir á öllum veitingahúsunum í bænum og geta gestir gengið á milli staða og staldrað við eftir því sem þeim lýst best á. Þetta hefur tekist mjög vel og á kvöldin hefur bærinn verið iðandi af lífi á árstíma sem annars er harla lítið um að vera.
Skemmtifélagið hefur einnig tekið að sér ýmis stutt verkefni, sem dæmi má nefna að félagið tók að sér að skipuleggja og stýra skemmtun á sviði Humarhátíðar sumarið 2009.
Hornfirska skemmtifélagið er áhugamannafélag og starfar á þeim grunni. Félagið hefur þó fengið til liðs við sig atvinnufólk úr listaheiminum.
 

Þjónustuflokkar fyrirtækis Tengiliður fyrirtækis
Afþreying
Söfn, listir og menning
Veitingahús og skemmtanir


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica