Fyrirtækjaskrá

Hot tubs in Hoffell
Hot tubs in Hoffell
Mynd Ragnar Th. Sigurðsson

Gistiheimilið Hoffell

Hoffell er innsti bærinn í Nesjum í Hornafirði, um 19 km. vestan við Höfn og 3 km. frá þjóðvegi nr. 1. Staðurinn er umvafinn stórbrotinni náttúru sem einkennist af miklum andstæðum og hrikaleika, allt frá flatri víðáttu til hárra fjalla, frá ísköldu jökulvatni til nýtanlegs jarðhita og frá ægilegum jökli til svartra sanda. Gistiheimilið er opið allan ársins hring. Heitar náttúrulaugar standa gestum til boða. Í Hoffelli eru einnig í boði skoðunarferðir með leiðsögn á fjórhjólum og siglingar á hjólabátum á lóni Hoffellsjökuls.

  • Heimilisfang: Hoffelli II
  •   781 Hornafjörður
  • Sími: 478 1514
  • Farsími: 898 5614
  • Heimasíða: www.hoffell.com
  • Opnunartími: Opið allt árið

Gisting:

Gistiheimilin í Hoffelli eru í fallegum gömlum uppgerðum húsum við rætur Vatnajökuls. Annað gistiheimilið var gert upp 2006 og hitt var opnað vorið 2010. Boðið er upp á uppábúin rúm og er eldunaraðstaða í öðru húsinu. Morgunmatur er innifalinn í verðinu og er hann með þeim hætti að matur er í ísskápnum og fólk bjargar sér sjálft, en meðal annars eru ný heimabökuð brauð. Innifalið í gistingunni er aðgangur að laugunum. Einnig er mikið af skemmtilegum gönguleiðum þar sem hægt er að njóta náttúrufegurðar Íslands eins og hún gerist best og opið allt árið um kring.

Heitar náttúrulaugar
Jöklaveröld í Hoffelli býður upp á heitar laugar þar sem þú getur upplifað hinar miklu andstæður náttúru Íslands á meðan þú liggur í heitum laugunum og notið útsýnisins af Vatnajökli (Hoffellsjökli) á sama tíma. Upplifunin er einstök og tilvalin leið til þess að láta ferðaþreytuna líða úr sér og njóta þess besta sem náttúra Íslands hefur upp á að bjóða. Gestir hafa aðgang að frá kl. 07 til kl 23.           

Fjórhjólaferðir: Jöklaveröld í Hoffelli býður upp á skemmtilegar ævintýraferðir á fjórhjólum, keyrt er inn í langan dal þar sem ósnortin náttúra ræður ríkjum, fallegur gróður, mikilfengleg fjöll, jökullinn og dýralíf. Mikið er lagt upp úr góðri leiðsögn í ferðunum og er þetta tilvalin ferð fyrir alla fjölskylduna til þess að eiga ævintýralegan og skemmtilegan dag saman í faðmi náttúrunnar        

Bátsferðir á jökullón: Jöklaveröld í Hoffelli býður upp á bátsferðir á hjólabát á lón Hoffellsjökuls. Þetta er einstök upplifun þar sem þú kemst í mikið návígi við jökulinn og færð að upplifa þögnina og náttúrufegurðina eins og hún gerist best.

 

Þjónustuflokkar fyrirtækis Tengiliður fyrirtækis
Ferðaþjónusta
Gistiheimili
Gisting
Heilsa


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica