Smyrlabjörg
Hótel Smyrlabjörg í Suðursveit
Velbúið reyklaust sveitahótel, með 44 björtum og vel útbúnum tveggja og þriggja manna herbergjum með baði í flokki IV. Ágætis aðstaða fyrir fatlaða. Hárþurrkur og sjónvörp eru á öllum herbergjum. Í sameiginlegu rými er sími og þráðlaust internet. Yfir sumartímann er boðið upp á stórkostlegt kvöldverðarhlaðborð, sem saman stendur af tugum heimagerða rétta sem útbúnir eru úr úrvals hráefni úr Austur – Skaftafellssýslu, ríki Vatnajökuls. En einnig er matsala opin yfir daginn.
Á Smyrlabjörgum er einnig hefðbundinn búskapur með kindur og fáeina nautgripi.
Staðsetning hótelsins er hentug fyrir skoðunarferðir um Suðausturland. Jeppa- og snjósleðaferðir á Vatnajökul (1,5 km), bátsferðir á Jökulsárlón (35 km). Góðar gönguleiðir eru í nágrenninu. Miklar líkur eru á því að sjá hreindýr, á öllum tímum nema rétt á meðan veiðitímabilið stendur yfir. Norðurljós má einnig sjá frá enduðum ágúst fram í mars, þegar veðurfar er hagstætt