Fyrirtækjaskrá

Glæsilegt úrval
Glæsilegt úrval

Handraðinn

Handraðinn er verslun í  hjarta Hafnar á Hornafirði.  Mikil fjölbreytni er í vöruúrvali, má þar nefna listmuni úr tré, leir, gleri, steinum, þæfðri ull, bútasaum, endurunnum pappír, málverk eftir heimamenn og margt fleira. Einnig er mikið úrval af prjónavörum bæði úr ull og öðru garni. Auk þessa eru stórglæsilegar ljósmyndir úr hinni stórbrotnu náttúru Hornafjarðar. Smellið hér til að skoða Facebook síðu Handraðans.

  • Heimilisfang: Vesturbraut inn af N1
  • Farsími: 8687028
  • Opnunartími: Á veturna er opið alla föstudaga frá 11:00-18:00, laugardögum frá 13:00-17:00. Á sumrin er opnunartíminn frá 1.maí - 3.september. Opið alla daga frá 9:00 – 18:00.

 

Handraðinn er verslun í  hjarta Hafnar á Hornafirði.  Á bak við Handraðann stendur samnefnt félag handverks-  og listafólks á Suðausturlandi sem hefur það að markmiði að koma á framfæri handverki og listmunum  sem framleidd eru á svæðinu.  Mikil fjölbreytni er í vöruúrvali, má þar nefna listmuni úr tré, leir, gleri, steinum, þæfðri ull, bútasaum, endurunnum pappír, málverk eftir heimamenn og margt fleira. Einnig er mikið úrval af prjónavörum bæði úr ull og öðru garni. Auk þessa eru stórglæsilegar ljósmyndir úr hinni stórbrotnu náttúru Hornafjarðar.

Opnunartími er sem hér segir:

Á veturna er opið alla föstudaga frá 11:00-18:00,  laugardögum frá 13:00-17:00.

Á sumrin er opnunartíminn frá 1.maí - 3.september. Opið alla daga frá 9:00 – 18:00.

Á mánudagskvöldum er prjónakvöld Handraðanum og er verslun opin þá frá 20:00-22:00.

Símanúmerið er 868 7028 og er velkomið að hringja hvenær sem er.

Þjónustuflokkar fyrirtækis Tengiliður fyrirtækis
Gjafavörur
Verslanir
Félagasamtök
Fataverslanir


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica