Ríki Vatnajökuls - Fuglar
    <description>Ríki Vatnajökuls</description>
Svartir svanir
      <alt>Svartur svanur</alt>
Álftirnar Sigrún og Finnur komnar til landsins
      <alt>Álftapar</alt>
Nátthegri á Jaðri í Suðursveit
      <description>Nátthegri sást á Jaðri í Suðursveit í gær 13.október og er þetta í áttunda skipti sem hann sést hér á landi og í fyrsta skipti á hann sést í Austur-Skaftafellssýslu. Náttheri  (Nycticorax nycticorax)  er varpfugl í sunnanverðri Evrópu, kubbslegur með hlutfallslega stuttann háls og lappir. Stærð hans er frá 58-72 cm, en kvennfuglinn er að meðaltali aðeins minni en karlfuglinn.
|nl|</description>
      <alt>Nátthegri</alt>
Mikið af álftum og gæsum
      <description>Óhemjumikið er af gæsum á túnum bænda í Hornafirði þessa dagana og auðséð að þær eru meðvitaðar um að gæsaveiði sé bönnuð á vorin, svo rólegar eru þær og nýta sér vel nýgræðinginn á túnunum. Álftapör skipta tugum meðfram þjóðveginum í Austur Skaftafellssýslu og eru  margar álftirnar mjög gæfar. Álftapar, líklegast það sama sem í mörg ár hefur verpt rétt við þjóðveginn í landi Krossbæjar í Nesjum, var í gær sumardaginn fyrsta önnum kafin við hreiðurgerð eða að laga til í gamla hreiðrinu. Björn Arnarson fuglaáhugamaður segir að álftirnar séu byrjaðar að verpa og 11. apríl fann hann fyrsta hreiðrið sem hann segir að sé heldur  í fyrra lagi.</description>
Fuglarnir farnir að týnast til landsins
      <description>Þessa dagana er nánast allt sem minnir Hornfirðinga á að vorið sé að koma, góð veður,hlýindi og gróður að byrja að sjást. Farfuglarnir eru  að byrja að týnast til landsins. Núna í vikunni sá Björn Arnarson æðarkóng  sem var að spóka sig á höfninni út af bræðslunni Hann segir að æðarkóngar komi alltaf hér inn í höfnina í mars og séu þá í fylgd með æðarfugli.</description>
Skúmurinn er kominn til landsins.
      <description>Björn Arnarson sá tvo skúma við Jökulsá  á Breiðamerkursamdi í gær. Í fyrra sá Hálfdán Björnsson á Kvískerjum fyrsta skúminn 16. febrúar  og segir hann að það hafi verið óvenju snemma. Skúmurinn ferðast mikið því þegar hann fer héðan á haustin liggur leið hans suður með ströndum Evrópu og Afríku, yfir Atlandshafið, upp með strönd Ameríku og þaðan aftur til Íslands. Björn sá fyrsta farfuglinn þann 26.febrúar, sílamáf sem kominn var í höfnina. Aðrar nýjar fuglafréttir eru þær helstar að þegar Björn Arnarson brá sér í höfuðstaðinn á dögunum fór hann í skógræktina í Fossvogi og sá þar hringdúfu og bláhrafn og brúnönd sá hann suður í Garði.</description>
Björn hefur forustuna með 79 fuglategundir
      <description>Frá 1.desember til 1.mars n.k. stendur yfir ,,Vetrarhlaup”, keppni  milli fuglaáhugamanna á Íslandi  um hver sér flestar fuglategundir á þeim tíma og eru þátttakendur 10 víðsvegar um landið. Björn Arnarson fuglaáhugamaður á Höfn hefur forustuna með 79 fuglategundir. Björn segir að hugmyndin að þessari keppni sé komin frá Kanada og þetta sé góð hvatning fyrir fólk að drífa sig út.</description>
Holudúfa á Hala í Suðursveit
      <description>Holudúfa sást á Hala í Suðursveit fyrir helgina og segir Björn Arnarson fuglaskoðunarmaður að þetta sé í fyrsta sinn sem holudúfa sést hér á landi svo staðfest sé. Líkur eru á að holudúfa hafi sést á þessum sama stað í sumar en ekki náðist að staðfesta það og telur Björn ekki ólíklegt að þarna sé um sama fugl að ræða og dúfan hafi verið hér á landi síðan í sumar.</description>
Fálkinn dó í svæfingu
      <description>Fálkinn sem í haust var komið með á byggðasafnið á Höfn, særðan á væng og var í góðu yfirlæti og hjúkrun hjá Birni Arnarsyni safnverði, var í vetur sendur til Reykjavíkur til læknismeðferðar. Ekki tókst að lækna fálkanum því hann þoldi ekki svæfinguna og dó. Björn brá sér í fuglaskoðunarferð um helgina og segir hann að óvenju mikið sé búið að vera af smyrli í haust og eins fálkum. Fálkar hafa stundum sést hér á veturna en þessir sem hafa verið hér undanfarið eru ungfuglar sem flækjast um. Farfuglar eru flestir farnir til vetrarstöðva sinna.</description>
Elrigreipur kemur frá Ameríku.
      <description>Óvenju mikið hefur sést af sjaldgæfum amerískum fuglum hér á landi í haust og eins er mikið af þeim fuglum sem heimsækja okkur annað slagið segir Björn Arnarson fuglaáhugamaður á Höfn, þetta er mun meira en ég hef séð hér áður. Þegar Björn var á ferð undir Eyjafjöllum fyrir viku síðan sá hann fugl sem ekki hefur sést áður hér á landi. Þetta var Elrigreipur sem er ný fuglategund fyrir Evrópu og kemur frá Ameríku. Fuglinn er venjulega kallaður Grípur, en það nafn fékk hann af því að hann nærist eingöngu á flugum sem hann grípur í loftinu. Aðrir sjaldgæfir fuglar sem komið hafa frá Ameríku eru Setrustoppa og Álmkraki.</description>
Stórir hópar álfta á beit með kindunum
      <description>Það eru ekki bara kindurnar sem nota sér grasið á túnum bænda á Mýrum og í Suðursveit heldur eru stórir hópar álfta á beit innan um kindurnar. Björn Arnarson fuglaáhugamaður segir að þessa dagana komi stórir hópar álfta af öllu landinu og safnist hér saman áður en haldið er til vetrarstöðvanna í Bretlandi. Þær geta stansað hér alveg í mánuð eða meira ef tíð er góð.</description>
Um 50 þúsund lundahreiður í Ingólfshöfða
      <description>Skoðunarferðum í Ingólfshöfða á þessu sumri er að ljúka og voru nokkru fleiri sem fóru í höfðann í sumar en verið hefur. Sigurður Bjarnason bóndi í Hofsnesi hefur veg og vanda að þessum ferðum og þar sem ekki er fært bifreiðum yfir sandinn notar hann dráttarvélar og kerrur til að ferja fólk á milli. Þessi ferðamáti er mjög vinsæll og í sumar hafa um 3500 erlendir ferðamenn að meðtöldum íslenskum fylgdarmönnum farið út í Ingólfshöfða. Íslenskir ferðamenn eru mjög fáir eiginlega ótrúlega fáir segir Sigurður og kennir hann veðurfarinu um, það hefur verið of mikil væta og er þetta alveg öfugt við það sem var í fyrra þá voru þeir íslensku óvenju margir.</description>
Étur allt sem að kjafti kemur
      <description>Fálkinn sem dvalið hefur á Byggðasafninu í umsjá Björns Arnarsonar er óðum að hressast. Hann er farinn að blaka vængjunum svo auðséð er að skaddaði vængurinn er að lagast og góðar líkur eru á að hægt verði að sleppa honum á næstu vikum. Björn segir að fálkinn sé orðinn mjög gæfur við sig og situr rólegur á hendi hans. Ekki er vandamál að fóðra  fálkann því hann étur allt sem honum er gefið svo sem svína- nauta- eða kindakjöt svo ekki sé minnst á nýdauða fugla.</description>
Fulmarus glacialis bjargað til sjávar
      <description>Fyrir stuttu sáu starfsmenn hornafjordur.is út um gluggann hjá sér ráðvilltan fýlsunga/múkka (fulmarus glacialis) sem engan vegin gat bjargað sér til hafs. Múkkinn ráðvillti renndi vonaraugum til þeirra sem framhjá fóru og reiknaði örugglega með því að einhver góðhjörtuð sál mundi hjálpa honum til hafs. Auðvitað brugðust starfmenn hornafjordur.is skjótt við og buðu fuglinum upp á smá bíltúr og óku sem leið lá út í Ósland þar sem fuglinn var frelsinu fegin. Núna er mikið af fugli á leið til sjávar og þeir sem ekki ná fluginu virðast helst vilja spóka sig á vegum landsins og því full þörf á að bílstjórar sýni varkárni.</description>
Sílavík paradís fuglaskoðara.
      <description>Í fuglaskoðunarferðum, sem eru alla miðvikudaga í sumar, er farið  frá Þjónustumiðstöðinni á Höfn og haldið í Sílavík og inn undir Ægissíðu. Þar er fjölbreitt fuglalíf  og gott að komast nálægt fuglunum. Björn Arnarson fuglaáhugamaður og leiðsögumaður segir að núna þegar vaðfuglarnir fari að koma aftur á leirurnar verði  Sílavíkin paradís fyrir fuglaskoðara.</description>
      <alt>Skúmur</alt>