Stórir hópar álfta á beit með kindunum
Það eru ekki bara kindurnar sem nota sér grasið á túnum bænda á Mýrum og í Suðursveit heldur eru stórir hópar álfta á beit innan um kindurnar. Björn Arnarson fuglaáhugamaður segir að þessa dagana komi stórir hópar álfta af öllu landinu og safnist hér saman áður en haldið er til vetrarstöðvanna í Bretlandi. Þær geta stansað hér alveg í mánuð eða meira ef tíð er góð.
Álftirnar fara illa með túnin og eru bændur lítt hrifnir af þessum gestum en meiga ekkert róttækt gera þessum friðaða fugli og fuglahræður duga lítið. Björn segir að mikið meira sé af álftinni en verið hefur og eins er með heiðargæsina, það er mikið meira af henni en áður hefur verið.
Söngvasvanur, sem við köllum oftast álft verpir aðeins á Íslandi, einum stað í Skotlandi og nyrst í Finnlandi af Evrópulöndum. Nokkuð af álft er hér á landi yfir veturinn en flestar fara til Bretlandseyja og eitthvað til Danmerkur.
Björn segist ekki hafa orðið var við neina óvenjulega flækingsfugla það sem af er hausti.





Skrifa athugasemd