Álftirnar Sigrún og Finnur komnar til landsins
Lítið var um álftir í Lóninu í vetur, nánast ekkert segir Björn Arnarson starfsmaður Fuglaathugunarstöðvar Suðausturlands en nú eru komnir hópar bæði af öndum og álftum.
Í vetur voru settir gervihnattasendar á tæplega 40 álftir og eru tvær þeirra komnar til landsins. Sendarnir eru settir á álftirnar á vetrardvalastað þeirra í Scotlandi, sendirinn festur á bak fuglsins og hringur festur um annan fót hans.
Samkvæmt því sem fram kemur á vef fuglar.is hefur þessum álftunum verði gefið nafn og eru álftirnar Sigrún og Finnur komin til landsins, Sigrún tók land í Öræfum og hélt svo til vesturs og heldur sig í nágrenni Hellu. Finnur lenti hér á Mýrunum skrapp þaðan í Lónið og til baka á Mýrarnar þar sem hann hefur haldið sig síðan.
Björn segir að hlé sé á komu farfuglanna síðan veturinn lét aftur á sér kræla en um leið og sunnanáttin kemur fari þeir að þyrpast til landsins. Byrjað er að merkja fugla í Einarslundi.
Gæsir eru aðeins farnar að sjást hér en aðalhóparnir koma um miðjan apríl.




Skrifa athugasemd