Fuglar
Morgunverður hjá fálkanum
Morgunverður hjá fálkanum

02.09.2003 Fuglar

Étur allt sem að kjafti kemur

Fálkinn sem dvalið hefur á Byggðasafninu í umsjá Björns Arnarsonar er óðum að hressast. Hann er farinn að blaka vængjunum svo auðséð er að skaddaði vængurinn er að lagast og góðar líkur eru á að hægt verði að sleppa honum á næstu vikum. Björn segir að fálkinn sé orðinn mjög gæfur við sig og situr rólegur á hendi hans. Ekki er vandamál að fóðra fálkann því hann étur allt sem honum er gefið svo sem svína- nauta- eða kindakjöt svo ekki sé minnst á nýdauða fugla.

Björn segir að allt varp hafi tekist mjög vel í sumar og krían hvarf fyrr úr Óslandinu en verið hefur. Ástæðan fyrir því mun vera að hún byrjaði fyrr að verpa en áður og lítið sem ekkert var rænt frá henni í vor. Á þeim tíma sem krían hvarf úr Óslandi var mikið af ófleygum kríuungum við Jökulsárlón en þar var enginn friður fyrir eggjaræningjum í vor. Mun fleiri æðarungar hafa komist upp en sl. ár og algengt er að sjá kollur með 3-5 unga. Mesta æðarvarp í sýslunni er í Syðra-Firði þar sem eru um 500 æðarpör. Björn hefur frétt af sex kóngasvörmum sem sést hafa hér í sýslunni en kóngasvarmi er stærsta fiðrildi sem sést hefur hérlendis og er vænghaf þess 11-13 cm. Geitungar hafa mjög lítið sést hér um slóðir í sumar og hefur Björn eitt aðeins einu geitungabúi sem fannst inni í Nesjum. Telur hann að kuldakastinu í vor sé um að þakka að hornfirðingar losna að mestu við geitungana í ár.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica