Fuglar
Villtur og einmanna
Villtur og einmanna

01.09.2003 Fuglar

Fulmarus glacialis bjargað til sjávar

Fyrir stuttu sáu starfsmenn hornafjordur.is út um gluggann hjá sér ráðvilltan fýlsunga/múkka (fulmarus glacialis) sem engan vegin gat bjargað sér til hafs. Múkkinn ráðvillti renndi vonaraugum til þeirra sem framhjá fóru og reiknaði örugglega með því að einhver góðhjörtuð sál mundi hjálpa honum til hafs. Auðvitað brugðust starfmenn hornafjordur.is skjótt við og buðu fuglinum upp á smá bíltúr og óku sem leið lá út í Ósland þar sem fuglinn var frelsinu fegin. Núna er mikið af fugli á leið til sjávar og þeir sem ekki ná fluginu virðast helst vilja spóka sig á vegum landsins og því full þörf á að bílstjórar sýni varkárni.

Á Vísindavefnum segir eftirfarandi “Fýlsunginn kemur mjög feitur úr hreiðrinu og vegna þyngdar sinnar nær hann ekki að hefja sig til flugs þegar hann lendir á þurru landi. Sama gildir þegar hann lendir á sjó, nema að hreyfing sjávarins, vindur og löng flugbraut (sjórinn sjálfur) gera honum auðveldara að ná vindi undir vængina.”

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica