Sílavík paradís fuglaskoðara.
Í fuglaskoðunarferðum, sem eru alla miðvikudaga í sumar, er farið frá Þjónustumiðstöðinni á Höfn og haldið í Sílavík og inn undir Ægissíðu. Þar er fjölbreitt fuglalíf og gott að komast nálægt fuglunum. Björn Arnarson fuglaáhugamaður og leiðsögumaður segir að núna þegar vaðfuglarnir fari að koma aftur á leirurnar verði Sílavíkin paradís fyrir fuglaskoðara.
Núna hafa verið um eitt þúsund Lóuþrælar (Calidris alpina) í Sílavíkinni og menn komast þar í meira návígi við fuglana en í Óslandi, þar sem mikið fuglalíf er, svo eru ekki allri hrifnir af að ganga um yfirráða svæði kríunnar. Fjöldi flækingsfugla hafa sést í sumar, t.d sá Björn Skeggþernu (kríuættar) á Vopnafirði um daginn og er það í annað sinn sem hún sést hér á landi svo vitað sé. Starra hefur fjölgað hér ár frá ári og verpa þeir á nokkrum stöðum, einnig hafa Rósastarrar sést hér. Þetta er eitt besta fuglaár frá því fuglaathuganir hófust hér og óvenju mikið af flækingum í vor. Varp virðist hafa komið vel út og ungar komist upp. Björn hefur talið 131 fuglategund í sumar og af þeim verpa 73 tegundir hér á landi svo þá eru 58 tegundir flækingsfugla.





Skrifa athugasemd