Fuglar
Skúmur (Mynd BA)
Skúmur (Mynd BA)

29.02.2004 Fuglar

Skúmurinn er kominn til landsins.

Björn Arnarson sá tvo skúma við Jökulsá  á Breiðamerkursamdi í gær. Í fyrra sá Hálfdán Björnsson á Kvískerjum fyrsta skúminn 16. febrúar  og segir hann að það hafi verið óvenju snemma. Skúmurinn ferðast mikið því þegar hann fer héðan á haustin liggur leið hans suður með ströndum Evrópu og Afríku, yfir Atlandshafið, upp með strönd Ameríku og þaðan aftur til Íslands. Björn sá fyrsta farfuglinn þann 26.febrúar, sílamáf sem kominn var í höfnina. Aðrar nýjar fuglafréttir eru þær helstar að þegar Björn Arnarson brá sér í höfuðstaðinn á dögunum fór hann í skógræktina í Fossvogi og sá þar hringdúfu og bláhrafn og brúnönd sá hann suður í Garði.

Allt eru þetta fuglar sem sjaldséðir eru hér á landi. Hringdúfan mun vera sú fyrsta sem hefur hér vetursetu aðþví ég best veit segir Björn, en þær eru algengar hér sumar og haust. Brúnöndin er flækingur frá Ameríku. Bláhrafn er krákutegund aðeins stærri en krákurnar sem mest er af í borgum Evrópu. Um 1991 var mikið af bláhrafni hér viða um land en eftir 1992 hefur ekki sést nema einn og einn, sum árin enginn.

Nú styttist í að hrafnarnir fari að huga að varpstað og þá er um að gera að fylgjast með hvort þeir snúa laup sínum mót norðri en sé svo þá veit það á kalt vor. Snúi laupurinn á móti suðri meigum við eiga von á hlýju og góðu vori.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica