Björn hefur forustuna með 79 fuglategundir
Frá 1.desember til 1.mars n.k. stendur yfir ,,Vetrarhlaup”, keppni milli fuglaáhugamanna á Íslandi um hver sér flestar fuglategundir á þeim tíma og eru þátttakendur 10 víðsvegar um landið. Björn Arnarson fuglaáhugamaður á Höfn hefur forustuna með 79 fuglategundir. Björn segir að hugmyndin að þessari keppni sé komin frá Kanada og þetta sé góð hvatning fyrir fólk að drífa sig út.
Fuglaáhugamenn hafa fengið aðstöðu í Frumkvöðlasetrinu í Nýheimum fyrir fugla-athugunarstöð og vinnur undirbúningsnefnd að því að koma starfseminni af stað. Starfsemi stöðvarinnar er m.a. fuglaskoðun, fuglafræðsla og merkingar á fuglum vor og haust. Við erum í sambandi við fuglaskoðunarstöðvar í Danmörku og Svíþjóð og þegar allt verður komið almennilega á stað hjá okkur fjölgar þeim stöðvum, segir Björn.
Þess má geta að Björn fann í vikunni sjaldséð fiðrildi. Þetta var þyrniygla (Eupsilia transversa) sem var í glugga búningsklefa í íþróttahúsinu Mánagarði. Björn segir að yglan hafi verið lifandi þegar hann fann hana en lognaðist svo útaf. Þessi ygla var um 4 cm löng og rauðdílótt en venjulega eru þær með hvíta díla. Þyrniyglur hafa sést 10 sinnum hér á landi svo vitað sé.





Skrifa athugasemd