Verkefni

Rannveig Einarsdóttir og Elín Sigríður Harðardóttir

Náttúrulega

Greinargerð vegna gerðar fræðslu- og upplýsingaskilta fyrir land Skógræktarfélags Austur-Skaftafellssýslu, Haukafelli, Mýrum, Hornafirði.


Í kjölfar þess að félagið fékk jákvæð svör um styrk frá Pokasjóði og Ferðamálaráði til að gera fræðslu- og upplýsingaskilti fyrir land félagsins, var ákveðið að hefja vinnu við gerð skiltanna. Lokið er grafískri vinnu við skiltin.
Veturinn verður notaður til vinnu við smíðar og uppsetningu skiltanna. Texti á erlendum tungumálum verður á undirskilti sem hægt er að draga út undan aðalskilti. Skiltunum verður komið fyrir á steinum og trjám sem fyrir eru í landinu og yfirlitsskilti verður við aðkomu á þjónustuhúsi. Vinna við prentun og smíðar verður samstarfsverkefni tveggja sprotafyrirtækja á Hornafirði og Skógræktarfélags Austur - Skaftafellssýslu.

Gerð voru eftirfarandi skilti:

  • Fræðsluskilti um Fláajökul sem náði eitt sinn alveg að túnunum í Haukafelli, framskrið hans á litlu ísöld. Einnig upplýsingar um búsetuna. (sjá mynd)
  • Fræðsluskilti um bæjarrústir sem eru í Haukafelli við nýrra bæjarstæðið. (sjá mynd)
  • Fuglaskilti , myndir af fuglum sem búast má við að sjá í Haukafelli. (sjá mynd)
  • Spendýraskilti, fræðsluskilti um vilt spendýr í Haukafelli. (sjá mynd)
  • Fjögur örnefnaskilti, eitt fyrir hverja átt þ.e. Suður,austur, norður, vestur, þar sem merkt er inn á panoramamyndir örnefni á svæðinu. (sjá mynd)
  • Yfirlitsskilti sem sýnir kort af svæðinu helstu gönguleiðir, örnefni og hvar fræðsluskiltin eru staðsett. (sjá mynd)



 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica