Verkefni

Spilað var á 45 borðum á Heimsmeistaramótinu 2004
Mynd 1 af 2
1 2

Á að nota klasa aðferðafræði til eflingar samkeppnishæfni atvinnulífs á Hornafirði ?

Verkefnið felst í að kynna íbúum Hornafjarðar hvernig má nýta Klasa aðferðafræðina til að auka samkeppnishæfni samfélaga og svæða. Einnig verður metið   hvort nýta megi klasa aðferðafræðina til að auka samkeppnishæfni fyrirtækja og einstaklinga í Hornafirði  sem og sveitarfélagsins í heild. Ef áhugi er á að nýta aðferðafræðina þarf að bera kennsl á hvaða klasa  á að þróa. 

Impra og iðntæknistofnun eru að vinna að gerð fræðslu og kynningarefnis  fyrir  einstaklinga, fyrirtæki, og félagasamtök. Gert er ráð fyrir að kynningarefnið verði tilbúið í  ágústmánuði 2004.

Kynningin færi fram með fyrirlestrum og fundum. Verkefninu  mundi síðan ljúka með vinnufundi sem haldið yrði í september / október 2004.  Þar mundu þátttakendur taka afstöðu til eftirfarandi:

 

  • Á að  nota Klasa aðferðafræðina til að auka samkeppnishæfni fyrirtækja og einstaklinga í Sveitarfélaginu Hornafirði  sem og sveitarfélagsins í heild?
  • Hvaða klasa á að vinna með og  þróa áfram eftir aðferðafræðinni?

 

Ef  þátttakendur eru sammála um að notast við aðferðafræðina og hvaða klasa á að þróa verður í framhaldinu hrundið af stað Klasa í Hornafirði.

Ávinningur verkefnisins er að auka samkeppnishæfni samfélagsins í Sveitarfélaginu Hornafirði. Sérstaklega er horft til þess að Hornafjörður er utan áhrifasvæðis virkjana- og stóriðjuframkvæmda á Austurlandi og því mikilvægt að renna styrkum stoðum undir atvinnulíf og nýsköpun í sveitarfélaginu.

Til að vel takist með verkefnið  er mjög mikilvægt að þáttakenndur komi til leiks sem íbúar í samfélaginu Hornafirði þar sem menn eru samankomnir til að vinna að því sameiginlega verkefni sem er að auka lífsgæði íbúana. Verkefnið er ekki pólitískt og tengist ekki ákveðnum starfsgreinum eða hópi fyrirtækja eða einstaklinga.

Frumkvöðlasetur Austurlands ehf., Hótel Höfn h/f, Skinney – Þinganes h/f, Vélsmiðjan Foss ehf, Bókhaldsstofan ehf. og Sveitarfélagið Hornafjörður vilja að unnið verði að þessu verkefni hér í Hornafirði. Sameiginlega sóttu þessir aðilar um fjárstuðning til Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands til að vinna að framgangi þessa verkefnis sem þau fengu. Fyrirhugað er að Frumkvöðlasetur Austurlands og Impra, Iðntæknistofnun vinni saman að framkvæmd verkefnisins.




 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica