Verkefni
Þjónustuver við kvikmynda og auglýsingaiðnaðinn
Fyrirhugað er að taka upp kvikmyndina Bjólfskviðu á Íslandi nú í sumar og haust. Þessa dagana er unnið við að ljúka fjármögnun verkefnisins. Megin hluta kvikmyndarinnar á að taka upp í Skaftafellssýslum og þess vegna hefur Frumkvöðlasetri Austurlands verið falið að kanna hvort áhugi sé hjá aðilum á Suður og Austurlandi að koma að fjármögnun verkefnisins. Eftir lauslegar kannanir og þreifingar hefur komið í ljós að áhuginn er töluverður.
Eins og kunnugt er hafa verkefni á þessu sviði verið veruleg í Skaftafellsýslum undanfarin ár. Það er hin sérstæða náttúra, fjölbreytni í landslagi, gott aðgengi að tökustöðum og þróaður ferðaiðnaður sem gerir umhverfið eftirsóknarvert. Þessi verkefni hafa haft í för með sér töluverða atvinnusköpun á svæðinu og ferða og þjónustuaðilar segja að verkefni þessu lík hafi verið ómetanleg búbót fyrir þeirra starfsemi.
Opinber stjórnvöld hafa gert sér grein fyrir þeim áhrifum sem kvikmyndaverkefni geta haft fyrir íslenskt menningar og athafnalíf. Sérstök löggjöf hefur verið sett til að styðja við kvikmynda- og sjónvarpsmynda -iðnaðinn en slík verkefni fá 12% af kostnaði verkefnisins endurgreiddan úr ríkissjóði. Jafnframt hefur verið sett á fót sérstök markaðsskrifstofa (Film in Iceland) sem hefur það hlutverk að fá erlend kvikmynda og auglýsinga fyrirtæki til að taka upp myndir hér á landi. Fyrir fjárfesta skapa þessi verkefni ný tækifæri og fjárfestinga möguleika.
Mikilvægt er að þær fjárfestingar sem lagt verður út í vegna Bjólfskviðu skili sér í auknum verkefnum og atvinnuuppbyggingu í framtíðinni. Kvikmyndaverkefnið Bjólfskviðu er hægt að nota til uppbyggingar á starfsemi tengdri þjónustu við kvikmynda- og auglýsingaiðnaðinn og til að fá aukin verkefni á svæðið og eins bæta þá þjónustu sem í boði er til frambúðar.
Fyrirhugað er að stofna félag Þjónustuverið ehf. sem hafi það verkefni að kaupa hlutafé í kvikmyndinni Bjólfskviðu og jafnframt móta framtíðar viðskiptaáætlun fyrir félagið sem ætlað er að sérhæfa sig í þjónustu við kvikmynda og auglýsingaiðnaðinn. Félagið mun gera samkomulag við framleiðendur kvikmyndarinnar um að verkefnisstjóri félagsins fái aðstöðu til að kortleggja þá þjónustu sem kvikmyndaiðnaðurinn þarf á að halda. Samtímis verði safnað upplýsingum um alla þá þjónustu sem svæðið hefur uppá að bjóða og með hvaða hætti best verði staðið að uppbyggingu þjónustunnar. Það er ekki markmið þessa félags að fara inn á verksvið Íslenskra kvikmynda og þjónustufyrirtækja sem starfrækt eru í dag heldur að vinna með þessum fyrirtækjum og veita þeim sem besta þjónustu.
Tímabil: mars 2004 –