Verkefni

Mynd1

Sala og markaðssetning á búnaði til dragnóta-, tog- og snurpunótaveiða

Undanfarin ár hefur Vélsmiðjan Foss ehf. á Höfn í Hornafirði unnið að þróun og markaðssetningu á búnaði til dragnótaveiða við Ísland og Noreg.
Sú vinna hefur gengið vel og hafa vörur fyrirtækisin líkað vel.
Sú sérstaða og nýnæmi sem varan hefur haft umfram aðrar sambærilegar vörur er fólgin í eftirfarandi þáttum:

• Umtalsvert minni rýmisþörf um borð í skipum
• Sami búnaður nýtist fyrir dragnótaveiðar, togveiðar og veiðar í snurpunót
• Minna slit verður á tógum
• Minni tíma og mannafla þarf í köst og hífingu viðkomandi veiðarfæra
• Stjórnun er nákvæmari og auðveldari
• Stofn- og viðhaldskostnaður er minni
• Búnaðurinn býður uppá afkastaaukningu við veiðar

Þótt að búnaðurinn sé á ýmsan hátt fullkomnari en sá sem almennt er í notkun hjá íslenska flotanum í dag er talið að sá markaður sé nær mettaður. Víðast hvar erlendis þar sem sambærilegar veiðar eru stundaðar er hins vegar yfirleitt notast við eldri búnað og mun óhagkvæmari. Það á meðal annars við í nærliggjandi löndum s.s. Noregi, Danmörku og Skotlandi. Stefnan að undangenginni athugun er því sett á Noreg og Danmörku sem fyrstu markaðssvæði erlendis.
Vinna þarf kynningarefni á norsku/ensku um búnaðinn og þjónustuna, þar sem fram koma tæknilegar lýsingar á búnaðinum, eiginleikum hans og kostum umfram eldri búnað og nýnæmi miðað við annan sambærilegan búnað á markaðnum. Fylgja þarf verkefninu eftir með markaðsheimsóknum, kynningum og samráðsfundum með umboðsmönum, þjónustuaðilum og væntanlegum kaupendum í Noregi og Danmörku.

Verkefnið er samstarfsverkefni Byggðastofnunar, VUR, Vélsmiðjunnar Foss ehf., Frumkvöðlaseturs Austurlands og Þróunarstofu Austurlands.
Vélsmiðjan Foss ehf. mun fá aðstoð frá Frumkvöðlasetri Austurlands, Þróunarfélagi Austurlands og VUR við undirbúning og framkvæmd verkefnisins.
Tímabil: maí 2004 – október 2004.
Á að nota klasa aðferðafræði til eflingar samkeppnishæfni atvinnulífs á Hornafirði ?

Verkefnið felst í að kynna íbúum Hornafjarðar hvernig má nýta Klasa aðferðafræðina til að auka samkeppnishæfni samfélaga og svæða. Einnig verður metið hvort nýta megi klasa aðferðafræðina til að auka samkeppnishæfni fyrirtækja og einstaklinga í Hornafirði sem og sveitarfélagsins í heild. Ef áhugi er á að nýta aðferðafræðina þarf að bera kennsl á hvaða klasa á að þróa.
Impra og iðntæknistofnun eru að vinna að gerð fræðslu og kynningarefnis fyrir einstaklinga, fyrirtæki, og félagasamtök. Gert er ráð fyrir að kynningarefnið verði tilbúið í ágústmánuði 2004.
Kynningin færi fram með fyrirlestrum og fundum. Verkefninu mundi síðan ljúka með vinnufundi sem haldið yrði í september / október 2004. Þar mundu þátttakendur taka afstöðu til eftirfarandi:

• Á að nota Klasa aðferðafræðina til að auka samkeppnishæfni fyrirtækja og einstaklinga í Sveitarfélaginu Hornafirði sem og sveitarfélagsins í heild?
• Hvaða klasa á að vinna með og þróa áfram eftir aðferðafræðinni?

Ef þátttakendur eru sammála um að notast við aðferðafræðina og hvaða klasa á að þróa verður í framhaldinu hrundið af stað Klasa í Hornafirði.
Ávinningur verkefnisins er aukin samkeppnishæfni samfélagsins í Sveitarfélaginu Hornafirði. Sérstaklega er horft til þess að Hornafjörður er utan áhrifasvæðis virkjana- og stóriðjuframkvæmda á Austurlandi og því mikilvægt að renna styrkum stoðum undir atvinnulíf og nýsköpun í sveitarfélaginu.
Til að vel takist með verkefnið er mjög mikilvægt að þátttakendur komi til leiks sem íbúar í samfélaginu Hornafirði þar sem menn eru samankomnir til að vinna að því sameiginlega verkefni sem er að auka lífsgæði íbúana. Verkefnið er ekki pólitískt og tengist ekki ákveðnum starfsgreinum eða hópi fyrirtækja eða einstaklinga.
Frumkvöðlasetur Austurlands ehf., Hótel Höfn h/f, Skinney – Þinganes h/f, Vélsmiðjan Foss ehf, Bókhaldsstofan ehf. og Sveitarfélagið Hornafjörður vilja að unnið verði að þessu verkefni hér í Hornafirði. Sameiginlega sóttu þessir aðilar um fjárstuðning til Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands til að vinna að framgangi þessa verkefnis sem þau fengu. Fyrirhugað er að Frumkvöðlasetur Austurlands og Impra vinni saman að framkvæmd verkefnisins.
Tímabil janúar 2004 – október 2004


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica