Verkefni
Undirbúningur alþjóðlegrar ráðstefnu
Frumkvöðlasetur Austurlands í samstarfi við Siglingastofnun verða framkvæmdaaðilar fyrir undirbúningshóp sem sér um skipulagningu og undirbúning á alþjóðlegri ráðstefnu sem halda á í Hornafirði í júní 2005. Á þessari ráðstefnu verður megin áherslan lögð á hönnun og viðhald innsiglinga, efnisflutninga við strendur, brimvarnargarða og sjóvarnir, öldufar og öryggismál sjófarenda. Meðal þess efnis sem íslenskir fræðimenn munu leggja áherslu á eru hönnun og bygging bermugarða, rof við Jökulsá á Breiðamerkursandi og varnir við því, ásamt öryggismálum sjófarenda. Mikið rof við Jökulsá á Breiðamerkursandi ógnar nú öryggi hringvegarins þar sem hann liggur milli Jökulsárlóns og suðurstrandarinnar
Að ráðstefnunni standa Hornafjarðarbær, Siglingastofnun, Háskóli Íslands og Samgönguráðuneytið. Frekari upplýsingar um ráðstefnuna er að finna á vefslóðinni www.icecoast.is
Tímabil : Janúar 2004 – Júní 2005
Gagnaöflun fyrir Þórbergssetur.
Starfsmaður Þórbergsseturs fær aðstöðu í Frumkvöðlasetrinu til að vinna að gagnaöflun fyrir væntanlegt Þórbergssetur sem fyrirhugað er að setja á fót á Hala í Suðursveit árið 2005. Starfið sem fer fram í Frumkvöðlasetrinu er í því fólgið að safna gögnum og munum sem tengjast Þórbergi á einn eða annan hátt. Yfirlestur gamalla skjala og bréfa í geymslu Skjalasafns Austur-Skaftafellssýslu er drjúgur þáttur. Einnig eru tekin viðtöl við fólk sem umgekkst Þórberg og er enn til frásagnar um það, fengnar lánaðar gamlar dagbækur og myndaalbúm í von um að finna einhvern fróðleik. Þótt Þórbergur sjálfur og verk hans séu að sjálfsögðu þungamiðja þessa starfs er líka verið að leita að efni um líf og störf fólks í Suðursveit frá þeim tíma sem hann var þar að alast upp. Mikill áhugi er á að finna skemmtisögur, glens ofl. sem ekki hefur sést áður. Hlutir úr eigu Þórbergs eru líka á óskalistanum. Efni sem kann að finnast fer síðan ýmist til sýningar á Þórbergssetri, inn á vefinn www.thorbergur.is eða í hendurnar á Jóni Þórissyni sýningarhönnuði sem sér um uppsetningu á Þórbergssetri framtíðarinnar á Hala í Suðursveit.
Tímabil: janúar 2004 -