Verkefni
Fuglaathugunarstöð á Höfn
Fuglaathugunarstöð á Höfn.
Fuglaathuganir eiga sér langa sögu á Suðausturlandi. Ber þar hæst nær 60 ára samfelldar athuganir Hálfdáns Björnssonar á Kvískerjum. Í ljósi mikils áhuga og langrar reynslu ákváðu félag fugla áhugamanna á Hornafirði, Náttúrugripasafn Austur –Skaftafellsýslu, Háskólasetrið á Hornafirði og Menningarmiðstöð Hornafjarðar að kanna aðstæður til að stofnsetja fuglaathugunarstöð á Höfn. Undirbúningsfélag um stofnun fuglaathugunarstöðvar hafa fengið aðstöðu á Frumkvöðlasetrinu meðan verið er að vinna undirbúningsvinnu varðandi stofnun fuglaathugunarstöðvarinnar. Tilgangur með fuglaathugunarstöð á Höfn er fyrst og fremst að efla skráningu og rannsóknir á fuglum á Suðausturlandi á grunni þeirrar löngu og víðtæku þekkingar sem þar hefur áunnist. Markmið stöðvarinnar er annars vegar á sviði talninga, merkinga, skráninga sem og alhliða rannsókna á fuglalífi á Suðausturlandi í samráði við Náttúrufræðistofnun Íslands.
Hins vegar langtímaathuganir og rannsóknir á erlendum flækingsfuglum er varða komu og dvalartíma þeirra og lífslíkur hér á landi. Frekari upplýsingar um verkefnið er að finna á vefslóðinni www.fuglar.is
Tímabil: Febrúar 2004 –