Verkefni

Ingvi að mæla

Vinnsla, geymsla og dreifing á lifandi humri.

Samstarfsverkefni Frumkvöðlaseturs Austurlands, Tækniháskóla Íslands, Rannsóknarstofnunar Fiskiðnaðarins og Skinney – Þinganes h/f.
Markmið með þessu verkefni er að kanna hvort hægt sé að vinna, geyma og dreifa lifandi Leturhumar (Nephrops Norvegicus) á hagkvæman hátt. Þá er stuðst við þá þekkingu og reynslu sem menn hafa í vinnslu, geymslu og dreifingu á lifandi humri (Homarus Vulgaris). Jafnframt þá reynslu og rannsóknir sem íslenskar rannsóknarstofnanir hafa aflað sér.
Janúar til maí er gert ráð fyrir að verkefnið verði skilgreint og unnið verði að markaðs, fjármála og tækni-greiningu. Unnið verði að rannsóknaráætlun og gengið frá fjármögnun verkefnisins. Sumar 2004 verður unnið að rannsóknum og prófunum. Haustið 2004 verð síðan gerð viðskiptaáætlun um verkefnið. Gert er ráð fyrir að nemendur við Tækniháskólann vinni verkefnið, en fái aðstöðu og handleiðslu hjá Frumkvöðlasetrinu, Rannsóknarstofnun Fiskiðnaðarins leggi til sérfræðiþekkingu og búnað, Skinney Þinganes leggur til aðstöðu, hráefni og umsjónarmann. Verkefnið er styrkt af Nýsköpunarsjóði námsmanna og AVS rannsóknarsjóði í Sjávarútvegi.

Helstu niðurstöður verkefnisinns voru eftirfarandi:

Aðeins hluti humarsins var lifandi eftir tvær vikur í geymslu og er það ekki ásættanlegur árangur. Humarinn sem var notaður í tilraunina var veiddur í troll og var því í misjöfnu ásigkomulagi þegar hann var settur í geymslu. Greinilega þarf að huga betur að veiðiþættinum til þess að fá fullfríska einstaklinga. Líklega væri best að nota gildrur við veiðarnar eða nota troll á minna dýpi og toga hægar og skemur en gert var. Fyrstu upplýsingar frá markaðnum gefa til kynna að um verulegan ávinning gæti verið að ræða ef tekst að koma humrinum lifandi eða ferskum á markað. Ari Þorsteinsson framkvæmdastjóri Frumkvöðlasetursins hefur mikla trú á þessu máli og undirbýr nú nýtt verkefni til þess að fullreyna þessa hugmynd.



 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica