Verkefni

G. Ágúst Pétursson

Frumkvöðlafræðslan ses.

Frumkvöðlafræðslan hefur haft aðstöðu í Frumkvöðlasetri Austurlands frá 1 október 2003. Í upphafi var unnið að undirbúningi að stofnun sjálfseignastofnunar. Fimmtudaginn 11. mars sl. var stofnfundur sjálfseignarstofnunar um frumkvöðlafræðslu haldin.
Markmið Frumkvöðlafræðslunnar ses. er að efla íslenskt atvinnulíf, styrkja einstök svæði, efla sjálfstraust nemenda og lífsleikni og auka færni þeirra til að takast á við verkefni viðskiptalegs eðlis. Starfsemin höfðar til grunn- og framhaldsskóla svo og fullorðinsfræðslu. Hún skiptist í eftirfarandi áherslusvið:
• Námsgagnagerð á sviði frumkvöðlafræða.
• Námskeiðahald og hvatning fyrir kennara sem hyggjast veita frumkvöðlafræðslu.
• Þróun sérhannaðra námsbrauta og ráðgjöf við skólastjórnendur og kennara.
• Önnur verkefni sem stuðla að nýsköpun og frumkvöðlastarfi á Íslandi.

Þýðing og staðfærsla á vönduðu námsefni hófst í maí mánuði og áformað er að þýðingu á fyrsta hluta námsbókar ljúki í águstmánuði 2004 og verður sá hluti kenndur í sex til sjö framhaldsskólum á haustönn 2004.
Frumkvöðlafræðslan er samstarfsaðili bandarískrar sjálfseignarstofnunar sem heitir NFTE ( “The National Foundation for Teaching Entrepreneurship”). Stofnunin er nú starfandi í 14 löndum. NFTE hefur starfað í 15 ár og stendur fyrir framleiðslu á námsefni sem er með því allra besta sem þekkist og hefur m.a. hlotið eftirsótta viðurkenningu í Bandaríkjunum fyrir námsefni (“Golden Lamp Award” 2002). Frekari upplýsingar er að finna á www.frumfr.is Tímabil: október 2003 -


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica