Samstarfsaðilar
Samstarfsaðilar
Samstarfsaðilar Frumunnar:
frumkvöðlasetrið er með mjög öflugt tengslanet og í nánu samstarfi við meðal annars eftirfarandi þjónustustofnanir atvinnulífsins;
Þróunarstofu Austurlands. Hlutverk Þróunarstofu Austurlands er að starfa á breiðum grunni að framþróun í atvinnulífi og jákvæðri samfélagsþróun. Megin viðfangsefnið er efling atvinnulífs og samkeppnishæfni byggðarlaga á Austurlandi og víðtækt þróunarstarf í landshlutanum.
Þróunarstofan hefur að leiðarljósi frumkvæði að framþróun í austfirsku samfélagi. Hún er skipuð starfsfólki sem er fært um að axla ábyrgð varðandi atvinnu- og byggðaþróun og hefur það markmið að skila sýnilegum árangri. Í starfi sínu tengist Þróunarstofan stórum hópi fagmanna frá fyrirtækjum, sveitarfélögum, stofnunum og öðrum aðilum og leggur áherslu á að rækta við þá gott samstarf. Starf Þróunarstofu Austurlands skal vera vel sýnilegt í austfirsku samfélagi þannig að íbúar þess séu ávallt vel meðvitaðir um að unnið sé með hagsmuni þeirra að leiðarljósi á öllum sviðum starfseminnar.
Fræðslunet Austurlands er sjálfseignarstofnun, formlega stofnuð 30. október 1998. Starfssvæði er allt Austurland, frá Skeiðará í suðri að Langanesi í norðri. Meginmarkmið með starfi Fræðslunets Austurlands erað bæta aðgengi íbúa Austurlands að háskólanámi, símenntun og styrkja með því jákvæða byggðaþróun. Fræðslunet Austurlands er samstarfsvettvangur fræðslustofnana, atvinnulífs og sveitarfélaga. Það er hins vegar ekki skóli, heldur er það tengiliður milli þeirra aðila sem sinna formlegri háskólakennslu og þeirra sem bjóða upp á símenntun og fullorðinsfræðslu annars vegar og hins vegar einstaklinganna, fyrirtækja og stofnana á Austurlandi.
Impra nýsköpunarmiðstöð er miðstöð upplýsinga og leiðsagnar fyrir frumkvöðla og lítil fyrirtæki. Impra er deild innan Iðntæknistofnunar og hefur skrifstofur í Reykjavík og á Akureyri. Impra veitir öllum frumkvöðlum og litlum og meðalstórum fyrirtækjum á Íslandi leiðsögn, sama er í hvaða atvinnugrein þau eru, hvort heldur á sviði iðnaðar, sjávarútvegs, þjónustu eða annarra greina íslensks atvinnulífs.
Iðntæknistofnun Íslands vinnur að markmiðum í samstarfi við fyrirtæki, félög og einstaklinga, vísinda- og rannsóknastofnanir, háskóla og stjórnvöld. Áhersla er lögð á frumkvæði og sveigjanleika til að mæta þörfum viðskiptavina á hverjum tíma.
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins. Hlutverk Rf er að stunda rannsóknir, framkvæma prófanir, veita ráðgjöf og miðla upplýsingum til stjórnvalda, hagsmunaaðila í sjávarútvegi og neytenda. Sérfræðisvið Rf eru m.a. vinnslutækni, líftækni, efna- og eðliseiginleikar matvæla, gæði og öryggi sjávarfangs, fóður og fóðurtækni í fiskeldi og umhverfisrannsóknir. Stefna Rf er að auka verðmæti sjávarfangs með rannsóknum, þróunarvinnu, miðlun þekkingar og ráðgjöf. Með því að vinna náið með atvinnulífinu og háskólum hér á landi sem og erlendis stuðlar Rf að uppbyggingu þekkingar og gagnvirkrar yfirfærslu þekkingar á milli rannsóknaraðila og atvinnulífsins.
Útflutningsráðs Íslands. Meginhlutverk Útflutningsráðs er að auðvelda íslenskum fyrirtækjum að selja vörur sínar, þjónustu og þekkingu erlendis.
Þjónustu Útflutningsráðs er skipt í fimm fagsvið; upplýsingar, ráðgjöf, fræðslu, sýningar og nýja markaði.
Viðskiptaþjónustu Utanríkisráðuneytis er starfrækt í öllum sendiráðum Íslands til að efla samkeppnisstöðu og árangur íslenskra fyrirtækja í útrás. Þar er veitt þjónusta á borð við markaðsathuganir og leit að hugsanlegum samstarfsaðilum. Sendiráðin geta einnig aðstoðað við að koma á fundum og tengslum við mikilvæga viðskiptavini. Sérmenntaðir viðskiptafulltrúar starfa í sex sendiráðum á mikilvægustu mörkuðum íslenskra fyrirtækja. Þeir vinna sértækari verkefni fyrir þau fyrirtæki sem leita markaðsupplýsinga samstarfsaðila og/eða umboðsmanna í umdæmislöndum viðkomandi sendiráða. Í þeim sendiráðum sem slíkrar þjónustu nýtur ekki við vísa sendiráðin á ráðgjafafyrirtæki sem hana veita. Ávinningur viðskiptavina og trúnaður við þá er ávallt hafður að leiðarljósi í öllu starfi Viðskiptaþjónustunnar.
Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins. Nýsköpunarsjóður ætlar sér að verða drifkraftur nýsköpunar á Íslandi með því að efla frumkvæði í atvinnustarfsemi og verða öflugur þátttakandi í nýsköpunarverkefnum á frumstigum þeirra. Nýsköpunarsjóður er:
- drifkraftur frumkvöðlastarfsemi á Íslandi
- öflugur stuðningsaðili frumkvöðla og fyrirtækja á fyrstu stigum starfsemi þeirra
- virkur áhættufjárfestir í arðvænlegum nýsköpunarverkefnum
- eftirsóttur samstarfsaðili hagsmunaaðila í atvinnulífi
- virkur þátttakandi í breytingu íslensks atvinnulífs.
Byggðastofnun. Hlutverk Byggðastofnunar er að vinna að eflingu byggðar og atvinnulífs á landsbyggðinni. Stofnunin undirbýr, skipuleggur og fjármagnar verkefni og veitir lán með það að markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi. Byggðastofnun fylgist einnig með þróun byggðar í landinu. Byggðastofnun vinnur að stefnumótandi byggðaáætlun fyrir allt landið í samráði við iðnaðarráðherra. Áætlunin skal gera grein fyrir ástandi og horfum í þróun byggðar í landinu og lýsa markmiðum og stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Í samræmi við hlutverk stofnunarinnar veitir hún lán eða annan fjárhagslegan stuðning í því skyni meðal annars að bæta aðstöðu til búsetu í einstökum byggðarlögum og koma í veg fyrir að óæskileg byggðaröskun eigi sér stað eða að lífvænlegar byggðir fari í eyði.