Hafa samband
Hafa samband
Frumkvöðlasetrið er með aðsetur í Nýheimum, Höfn í Hornafirði. Nýheimar er nýtt vandað húsnæði staðsett í hjarta Hafnar í Hornafirði í einstöku umhverfi og með einstakt útsýni.
Frumkvöðlasetrið er með sérstaka álmu í Nýheimum og hefur yfir að ráða sérhönnuðum skrifstofuherbergjum ætluðum fyrir frumkvöðla, fyrirtæki og stofnanir. Í frumkvöðlasetrinu er sameiginleg mótaka og fundaraðstaða. Allir aðilar sem fá inni á setrinu fá aðgang að sameiginlegri aðstöðu í Nýheimum.
Menn geta heimsótt Frumkvöðlasetrið í Nýheimum, Litlubrú 2 Höfn Hornafirði, farið inn á heimasíðu félagsins www.fruma.is . Einnig er hægt að fá nánari upplýsingar hjá framkvæmdastjóra í síma 470 8080, farsíma: 891 8080 eða netfang: ari@fruma.is