Frumkvöðlasetrið

Frumkvöðlasetrið

Frumkvöðlaseturs Austurlands ehf.

 

Frumkvöðlasetur Austurlands ehf. er umgjörð um tilraunaverkefni. Í það er ráðist til þess að meta hvort ávinningur geti verið af því að setja á stofn fleiri frumkvöðlasetur annars staðar á landinu, t.d. í samstarfi við heimamenn og atvinnuþróunarfélög á viðkomandi stað.  Samkomulagið er bindandi til fimm ára en verður tekið til endurskoðunar og mats að tveimur árum liðnum.

Markmið. Frumkvöðlasetur Austurlands hefur það markmið að skapa einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum  þekkingarumhverfi, aðstöðu og umgjörð til að vinna að nýsköpun, athugunum, áætlunum og rannsóknum.

Aðdragandi. Aðdraganda að stofnun Frumkvöðlasetursins má rekja allt aftur til ársins 1995 en þá byrjaði bæjarstjórn og atvinnumálanefnd Hornafjarðar að leita með skipulögðum hætti að nýjum leiðum til að efla nýsköpun og atvinnuþróun í sveitarfélaginu.  Mikil vinna og fjármunir voru lagðir á næstu árum í að móta og undirbyggja hugmyndir um Frumkvöðlasetrið og var þekkingar og faglegra ráða leitað bæði hérlendis og erlendis.   Í framhaldi af því tengist undirbúningur að stofnun setursins áformum um nýbyggingu fyrir framhaldsskóla sýslunnar.  Síðan leiðir eitt af öðru í umfangsmikilli vinnu bæjarstjórnar og fleiri aðila, aðstaða fyrir aðra starfsemi tengist verkefninu og endanleg niðurstaða verður bygging Nýheima með þá fjölbreyttu starfsemi sem þar er nú. 

 

Aðstaðan. Nýheimar eru glæsilegt óðal sem myndar óvenju vandað umhverfi fyrir nútíma störf á sviði þekkingar, menningar og nýsköpunar.  Frumkvöðlasetrið er mikilvægur hluti Nýheimanna og frumkvöðlarnir sem þar fá vist og stuðning eru hluti þess afls sem knýja mun áfram með frumkvæði sínu og hugviti uppbyggingu atvinnulífs á starfssvæði setursins og víðar í framtíðinni. Nýheimar Í Nýheimum eru  einnig til húsa  Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu, 

Menningarmiðstöð Hornafjarðar,  

Háskólasetur á Hornafirði

Upplýsingamiðstöð ferðamála. 

Nýheimar er ný sérhönnuð bygging þar sem lögð er áhersla á að innleiða nýja hugsun, tækni og vinnubrögð í menntun, menningarmálum,  þróunarstarfi og nýsköpun  sem nýtist við  styrkingu atvinnulífs á svæðinu. Byggt er á þverfaglegum vinnubrögðum notkun upplýsingatækni og sveigjanlegu rými sem auðvelt er að laga að síbreytilegum kröfum. Frumkvöðlasetrið er með sérstaka álmu í Nýheimum og hefur yfir að ráða sérhönnuðum skrifstofuherbergjum ætluðum fyrir frumkvöðla, fyrirtæki og stofnanir.  Í frumkvöðlasetrinu er sameiginleg mótaka og fundaraðstaða. Allir aðilar sem fá inni á setrinu fá aðgang að sameiginlegri aðstöðu í Nýheimum.

 

Umhverfið.

Á Hornafirði er  öflugur  sjávarútvegur  sem skapar undirstöðu þeirrar velmegunar sem almennt ríkir á staðnum. Höfn er meðal annars þekkt sem verstöð fyrir humarvertíð að vori og sumri, síldarvertíð að hausti og  loðnu og saltfiskvertíð að vetri. HornafjarðarhöfnÁ Hornafirði og í nágrenni hans er rekin öflugur ferðamannaiðnaður. Nálægð stærsta jökuls Evrópu, Vatnajökuls, býður upp á óþrjótandi möguleika til útivistar og afþreyingar. Verkefni á sviði kvikmynda- og auglýsingakvikmyndunnar eru alltaf að aukast í Austur –Skaftafellsýslu. Það er hin sérstæða náttúra, fjölbreytni í landslagi, gott aðgengi að tökustöðum og þróaður ferðaiðnaður sem gerir umhverfið eftirsóknarvert. Í sveitarfélaginu Hornafirði er stundaður blómlegur og fjölbreyttur  landbúnaður og eru aðal framleiðsluvörur bændanna mjólk og kindakjöt auk nauta- og svínakjöts. Einnig er stunduð öflug kartöflurækt  og svæðið þekkt fyrir hreinleika og vistvæna vöru. Skilyrði til kornræktar og kynbótastarf  hafa gert það að verkum að árangur í kornrækt er svipaður og gerist í nágrannalöndum okkar.


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica