Frumkvöðlar
Frumkvöðlar
Frumkvöðull skilgreining.
Frumkvöðull: 1. Forgöngumaður, upphafsmaður, brautryðjandi. 2. Viðsk./hagfr. maður sem kemur auga á nýja möguleika í atvinnurekstri og hrindir þeim í framkvæmd.
Athafna-skáld: 1. Viðsk./hagfr. Mikilvirkur brautryðjandi í atvinnulífi.
Frumkvöðull = Athafna –skáld
Frumkvöðlasetur = Athafna -skáldasetur
Hverjir geta fengið inni á Frumkvöðlasetrinu.
Einstaklingar, fyrirtæki, námsmenn, skólar, stofnanir, samtök, aðilar sem leggja stund á hvers kyns:
- rannsóknir,
- athuganir,
- þróun á vöru og eða þjónustu,
- hyggja á nýsköpun eða eru með hugmyndir um nýja vöru eða framleiðslu.
- aðilar sem eru að vinna að:
- gerð viðskiptaáætlana,
- hagkvæmniathugunum,
- markaðsathugunum,
- undirbúningi að stofnun fyrirtækis.
Rótgróin fyrirtæki sem leggja stund á vöruþróun og vinna að rannsóknum eða athugunum. Fyrirtæki og stofnanir sem hafa áhuga á að setja upp starfsstöð á Hornafirði. Aðilar sem eru að vinna að afmörkuðum verkefnum. Það eru engin landfræðileg mörk á því hvaðan aðilar koma sem fá inni á setrinu.
Kröfur og viðmið til viðskiptahugmynda og eðli fyrirtækja sem fá aðstöðu.
Fjallað er um hverja umsókn á stjórnarfundi og skal framkvæmdastjóri leggja gögn fyrir til kynningar. Helstu skilyrði eru:
- Að fyrir liggi a.m.k. drög að viðskiptaáætlun vegna reksturs eða stofnunar fyrirtækis.
- Að fyrir liggi starfsáætlun um starfsemi frumkvöðulsins á meðan á verunni stendur í setrinu og eins áætlaður útgöngutími.
- Að viðkomandi geti sýnt fram á fjármögnun og þar með greiðslu fyrir aðstöðu.
- Að viðskiptahugmyndin hafi nýsköpunargildi og sé ekki í beinni samkeppni við svæðisbundna framleiðslu- eða þjónustuaðila.
- Að til staðar sé geta og færni til að vinna að úrlausn viðskiptahugmyndarinnar.
- Að rekstraraðili virði almennar umgengnisreglur Frumkvöðlasetursins.
- Að viðkomandi skrifi undir trúnaðarsamning gagnvart öðrum fyrirtækjum í setrinu
+