Fréttir fruma
Átak til atvinnusköpunar, auglýst eftir styrkjum
Impra auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna verkefnisins Átak til atvinnusköpunar. Þetta er stuðningsverkefni á vegum Iðnaðarráðuneytisins, en Impra á Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur umsjón með verkefninu. Í stjórn Átaksins sitja fimm stjórnarmenn og er Sigríður Ingvarsdóttir formaður stjórnar. Markmið Átaksins er að styrkja nýsköpunarverkefni á vegum fyrirtækja og einstaklinga, efla frjóa hugsun, auka verðmætasköpun og bæta þannig samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja og frumkvöðla. Lögð er áhersla á að styðja verkefni snemma á þróunarstigi og sérstaklega horft til verkefna með afgerandi nýsköpunargildi. Nauðsynlegt er að verkefni séu atvinnuskapandi á Íslandi til framtíðar.
Átakið getur einungis stutt verkefni þar sem ekki er um beina samkeppni að ræða við aðra innlenda aðila. Vara eða þjónusta sem er einungis í boði svæðisbundið telst ekki í samkeppni við sambærilega vöru eða þjónustu sem er einungis í boði svæðisbundið á öðrum stað á landinu. Vara eða þjónusta sem er í boði á landsvísu telst hinsvegar í samkeppni við aðra sambærilega innlenda vöru eða þjónustu. Verkefni sem fjalla eingöngu um útflutning og falla undir nýsköpun teljast styrkhæf, þótt aðrir íslenskir aðilar bjóði sömu vöru eða þjónustu innanlands eða utan.
Algengast er að verkefni snúist um vöruþróun eða markaðssetningu og hafa slík verkefni nýst fyrirtækjum og frumkvöðlum sérlega vel. Oft er stuðningur Átaksins fyrsta fjármögnun stærri verkefna og hefur nýst til að vinna undirbúningsvinnu í átt að arðbærum rekstri og eflingu fyrirtækja, sem og til að laða að frekara fjármagn.
Frjósemi og gróska virðast einkenna íslenskt atvinnulíf, því þegar auglýst er eftir umsóknum berast um og yfir 100 umsóknir alls staðar að af landinu.
Allar nánari upplýsingar er að finna á www.impra.is