Fréttir fruma

Handverksmaðurinn Ragnar Arason
Handverksmaðurinn Ragnar Arason
Handverksmaðurinn Ragnar Arason er einn af þeim sem er skapandi í ríki Vatnajökuls. (úr myndasafni).

Skapandi greinar í ríki Vatnajökuls

19.04.2006

Málþing undir heitinu Skapandi greinar í ríki Vatnajökuls, verður haldið 26. apríl n.k. í Nýheimum. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, setur málþingið. Á málþinginu verða skapandi greinar kynntar sem hagnýt atvinnugrein. Stefnur og straumar í skapandi starfsgreinum með sérstaka áherslu á upplifunar- og afþreyingariðnað, Mikligarður sem miðstöð skapandi atvinnugreina, reynsla Hornfirska Skemmtifélagsins af skapandi starfsemi. Markmið málþingsins er að kynna fyrir þinggestum hvað skapandi greinar eru og eins að kortleggja þær skapandi greinar sem eru til staðar á Suðausturlandi og hvernig hægt er að nýta þær til atvinnusköpunar í ríki Vatnajökuls og tengingu við ferðaþjónustuklasa Suðausturlands. Málþingið er öllum opið og þeir sem hafa atvinnu af eða áhuga á hverskyns handverks- og menningarstarfsemi og ferðaþjónustu eru sérstaklega hvattir til að mæta.


Frummælendur á málþinginu verða.

  • Smári Sigurðsson, Iðntæknistofnun
  • Sigurður Steingrímsson , Impra, Iðntæknistofnun
  • Guðmundur Oddur Magnússon, Listaháskóli Íslands
  • Kristín Gestsdóttir, Hornfirska skemmtifélagið
  • Hjalti Þór Vignisson, Menningarmiðstöð Hornafjarðar
  • Kristbjörg Jónasdóttir, Atvinnuþróunarfélag Austurlands
  • Ari Þ. Þorsteinsson, Frumkvöðlasetur Austurlands ehf.


Skráning á málþingið fer fram í síma 470 8000 eða á netfanginu malthing@hfn.is. Frumkvöðlasetur Austurlands ehf, Menningarmiðstöð Hornafjarðar, atvinnumálanefnd Hornafjarðar og Impra nýsköpunarmiðstöð á Iðntæknistofnun standa að málþinginu.

Málþingið hefst klukkan 10:00, áætlað er að því ljúki klukkan 15:15.

Sjá dagskrá (pdf)

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica