Fréttir fruma
Vinnufundur hjá Ferðaþjónustuklasa Suðausturlands
Fyrirhugað er að halda vinnufund hjá Ferðaþjónustuklasa Suðausturlands 16.nóv.nk. og verður fundurinn haldinn í Nýheimum og hefst kl. 10.00 Vinnuhópnum til halds og trausts verður Elvar Knútur Valsson verkefnastjóri hjá Impru Nýsköpunarráði sem aðstoðar við að koma vinnunni á stað. Vinnan sem fer þarna fram, er að skilgreina og setja í gang þau verkefni sem eiga þátt í að uppfylla stefnu og þau markmið sem menn settu sér með klasaverkefninu. Stefna ferðaþjónustuklasa Hornafjarðar er: með markvissu klasasamstarfi fyrirtækja, stofnana og sveitarfélags verði ferðaþjónusta svæðisins öflug og arðbær heilsársatvinnugrein og markmiðin eru að bæta afkomu fyrirtækja í greininni lengja ferðamannatímann og einnig viðverutíma ferðamanna ásamt því að fjölga störfum í ferðaþjónustu á svæðinu.
Til að halda utan um vinnuna hafa eftirfarandi aðilar tekið að sér að halda utan um vinnu hvers hóps, en það breytir því ekki að allir aðilar hvar sem menn eru staðsettir landfræðilega eða hvaða hópi sem menn eru í forsvari fyrir eru velkomnir til þáttöku í hvaða hóp sem er:
Menntun Rannsóknir og þróun: Hjalti Þór Vignisson.
Sölu og Markaðsstarf: Gísli Már Vilhjálmsson.
Veitingar & Gisting: Reynir Arnarsson.
Matvæli: Ari Þorsteinsson.
Afþreying: Jóna Ingólfsdóttir.
Viðburðir & Skapandi Iðnaður: Sigurður Mar Halldórsson
Samgöngumál: Óðinn Eymundsson.
Sérhæfð Þjónusta: Guðbrandur Jóhannsson.
Þeir sem hafa áhuga á ákveðnu verksviði geta sett sig í samband við viðkomandi verkefnastjóra. Allir eru velkomnir og vonast við til að sjá sem flesta og að við eigum afkastamikinn dag, segir Ari Þorsteinsson í Frumkvöðlasetri Austurlands
