Fréttir fruma

María Emilsdóttir, Eik Aradóttir, María Gísladóttir og Ásgrímur Arason sækja jakann góða (Mynd AÞÞ)
María Emilsdóttir, Eik Aradóttir, María Gísladóttir og Ásgrímur Arason sækja jakann góða (Mynd AÞÞ)
María Emilsdóttir, Eik Aradóttir, María Gísladóttir og Ásgrímur Arason sækja jakann góða (Mynd AÞÞ)
Mynd 1 af 2
1 2

Hluti úr Vatnajökli á sýningu í París

09.06.2004

Í tengslum við íslenska menningarviku sem haldin er í haust í París verður fluttur út ísjaki úr Jökulsárlóni og er táknrænt gildi hans að vera hluti af Vatnjökli sem er stærsti jökull Evrópu. Sendiherra Íslands í París Sigríður Á. Snævarr hafði samband við Aðalstein Ingólfsson hjá Skinney Þinganesi og leitaði aðstoðar hans við öflun jakans, Aðalsteinn fékk síðan Ara Þorsteinsson hjá Frumkvöðlasetri Austurlands til þess að sjá um framkvæmd verksins. Sýnishorn eða um 16 kílóa jaki var sóttur að Jökulsárlóni og verður hann notaður í drykki á blaðamannafundi sem verður haldinn á morgun þar sem íslenska menningarvikan verður kynnt. Klakinn var einnig sýndur í sjónvarpsviðtali við Sigríði í gærkvöldi.

Þetta er án efa upphaf af stærra ævintýri og mun þetta brot af Vatnajökli verða Jöklasetrinu á Höfn til framdráttar og munum við segja nánar frá þessu þegar að fréttir og myndir munu berast okkur frá fréttaritara vefsins í París.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica