Fréttir fruma

Handverk
Handverk
Eldsmiður í Kanada
Mynd 1 af 10
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

Handverk getur átt við svo til allt milli himins og jarðar

30.10.2007

Handverk skipar æ stærri sess í ferðaþjónustu hér á landi og eru handverk boðið til sölu víðast þar sem ferðamenn fara um og einhver ferðaþjónusta er í boði. Ari Þorsteinsson framkvæmdastjóri Frumunnar  í Nýheimum  hefur sl. ár tekið þátt í samstarfsverkefni  með aðilum í Noregi þar sem verið er að skoða kanadískt módel við uppbyggingu á handverki og eins hvort sú aðferðafræði gæti nýst á norðlægum slóðum. Þessi aðferðafræði  sem kallast "economusée"   hefur verið í þróun hjá Kanadamönnum í 20 ár og þar eru í dag starfrækt 43 slík handverks fyrirtæki.

Markmið með economusée handverksfyrirtækjunum er að varðveita hefðbundið handverk, mæta þörfum samtímans, hjálpa þátttakendum til að verða fjárhagslega sjálfstæðir og þróa menningar- og fræðslu- ferðamennsku.

Economusée er einkafyrirtæki sem notar hefðbundna tækni eða þekkingu við framleiðslu á afurðum sínum, kynnir þekkingu sína og handverksmenn fyrir almenningi, hefur aðstöðu til vinnslu, sýningar  og kynningar á vörunni og síðast en ekki síst þarf sala á vörunni á að standa undir rekstri fyrirtækisins. Þessi fyrirtæki verða að vera staðsett á stöðum þar sem ferðamenn fara um. Við erum m.a. með þessu að  horfa til Vatnajökulsþjóðgarðs þar sem von er á miklum fjölda ferðamanna og erum að reyna að vera undir það búin að geta verið með handverk og minjagripi sem sóst er eftir. Handverk getur átt við svo til allt milli himins og jarðar, þetta getur átt við t.d. matvæli, hannyrðir, ullarvinnslu, rennismíði og járnsmíði  svo eitthvað sé nefnt.

Samstarfið hefur þróast þannig að við höfum fengið til liðs við okkur Norður-Íra, Íra, Færeyinga og Kanadamenn og sameiginlega erum við að undirbúa verkefni sem felur í sér að yfirfæra þessa aðferðafræði  economusée yfir til norður Evrópu (þ.e. ofangreindra landa).

Gert er ráð fyrir að verkefnið taki þrjú ár. Kanadamenn eru tilbúnir til að miðla okkur af þekkingu sinni og sameiginlega förum við yfir hvernig best verður staðið að  þekkingaryfirfærslunni og í framhaldinu velja þá aðila eða fyrirtæki sem áhuga hafa á að taka þátt í þessu verkefni eða vilja stofna fyrirtæki eftir economosée fyrirmyndinni.

http://www.economusees.com/

 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica