Fréttir fruma

Skapandi greinar í ríki Vatnajökuls
Skapandi greinar í ríki Vatnajökuls
Skapandi greinar í ríki Vatnajökuls
Mynd 1 af 3
1 2 3

Skapandi greinar í ríki Vatnajökuls

02.06.2006

30 manns tóku þátt í málþinginu Skapandi greinar í ríki Vatnajökuls, sem var haldið 26. apríl síðastliðinn í Nýheimum á  Höfn í Hornafirði.

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands setti málþingið og hélt stutt ávarp. Aðrir frummælendur voru Smári Sigurðsson frá Iðntæknistofnun, Sigurður Steingrímsson frá Impru, Nýsköpunarstofu á Iðntæknistofnun,  Guðmundur Oddur Magnússon prófessor við Listaháskóli Íslands, Kristín Gestsdóttir framkvæmdastjóri Hornfirska skemmtifélagsins, Hjalti Þór Vignisson forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar, Kristbjörg Jónasdóttir verkefnastjóri hjá Atvinnuþróunarfélagi Austurlands og Ari Þ. Þorsteinsson framkvæmdastjóri Frumkvöðlaseturs Austurlands ehf.

 Í setningarávarpi Ólafs Ragnars  kom meðal annars fram  að eitt af því  sem ráði úrslitum í samkeppni nútímans sé hið skapandi hugarflug, hæfileikinn til að fara nýjar leiðir og að hafa til að bera ferska hugsun og  frumleika í ríkum mæli.

Jafnframt sagði hann “Á markaðstorgi viðskiptanna er í æ ríkara mæli viðurkennt að samkeppnisstaðan skaðist við að líkjast öðrum. Það er ekki lengur boðorð dagsins að allir séu eins. Þvert á móti verður sérstaðan, eiginleikar sem eiga sér djúpar rætur á heimavelli, í auknum mæli forsenda þess að ná árangri sem skiptir sköpum.”

Forsetinn telur að í framtíðinni muni hundruð þúsunda ferðamanna vilja koma og heimsækja ríki Vatnajökuls allan ársins hring.

Það er svo hlutverk okkar, íbúanna í ríkidæmi Vatnajökuls, að finna leiðir til að beina þessum ferðamönnum hingað og fá þá til að staldra við hjá okkur.  Tilgangur þessa málþings um skapandi greinar í ríki Vatnajökuls var einmitt sá að kortleggja sérstöðu okkar, gera hana sýnilega og eftirsóknarverða fyrir ferðalanga framtíðarinnar.

 

Á þinginu voru skapandi greinar kynntar sem hagnýt atvinnugrein. Einnig var fjallað um stefnur og strauma í skapandi starfsgreinum með sérstaka áherslu á upplifunar- og afþreyingariðnaðinn.  Guðmundur Oddur fór með teikningum og leikrænum tilburðum yfir líkan sem sýndi mismunandi þroskastig einstaklinga en það verður að segjast eins og er að erindi hans hrærði upp í hugum ráðstefnugesta og var á sama tíma bráðskemmtilegt. Sigurður Steingrímsson fór yfir hugmyndafræði Klasana. Kristín Gestsdóttir fór yfir starfsemi og framtíðarsýn Hornfirska skemmtifélagsins.   Eins var farið yfir hugsanlega notkunarmöguleika á Miklagarði í tengslum við skapandi greinar. Fundarmenn voru sammála um að Mikligarður gæti gegnt lykilhlutverki sem miðstöð skapandi atvinnugreina á Hornafirði.

 

Að erindunum loknum var farið í verkefna vinnu. Byrjað var á því að allir fundargestir fóru  í hugarflug þar sem farið var yfir verkefni sem tengjast skapandi greinum og ferðaþjónustu Að hugarflugi loknu voru myndaðir vinnuhópar þar sem hver hópur valdi sér ákveðið viðfangsefni tengt hugarfluginu til frekari úrvinnslu. 

 

Frumkvöðlasetur Austurlands ehf, Menningarmiðstöð Hornafjarðar, atvinnumálanefnd Hornafjarðar og Impra nýsköpunarmiðstöð á Iðntæknistofnun, Atvinnuþróunarfélag Austurlands. Stóðu að málþinginu.

 

Niðurstöður vinnuhópa. Hugarflug á málþingi um skapandi greinar í ríki Vatnajökuls.

 

Hátíðir:

Norðurljósablús; Humarhátíð; Fenjahátíð

 

Náttúra/afþreying:

Stjörnuskoðun; Eyjarnar á firðinum; Brotin í Ósnum; Sveitirnar; Sandurinn; Gabbró, Silfurberg; Útsýni á fjörunum; Þjóðgarður; Gisting í Vatnajökli; Fuglaskoðun; Skautaferðir; Alþjóðlegar; þjálfunarbúðir í fjallamennsku; Víðátta; Þögn; Rigning; Myrkur; Gönguleiðir; Göngur og réttir; Jöklagolf; Jurtir og gróður; Skriðubrun; Jökulhlaup; Skeiðarárhlaup; Flúðasigling; Útsýni úr Almannaskarði; Hlaupa í skarðið; Skarðsdagur; Sjóstangaveiði; Hestaferðir; Laxveiði; Göngutúrar um Höfn m/leiðsögn; Nykur; Innanfjarðarsigling/kajak; Jöklamýs

 

Stofnanir:

Mikligarður; Hótel í Mikley; Sundlaug; Efling Nýheima; Kvísker/náttúruvísindi; Þórbergssetur/Esperantó/skrímslafræði

Gestavinnustofur; Eilífðarvélasafn

 

Afurðir:

Lúra; Humar; Hreindýr; Ísmolar; Áll; Lamb

Hornfirski hesturinn; Kartöflur og grænmeti

 

Menning:

Þjóðsögur; Vefaradans; Hornfirsk skemmtidagskrá

Svavar Guðnason; Vatnslitamyndir Ásgríms Jónssonar

Byggðaleikhús/raunverulegir atburðir leiknir á raunstað

Grýla; Hornafjarðarmanni

 

Annað:

Kvikmyndaiðnaður; Arkitektúr og hönnun; Rokkbanda-aðstaða

Endurnýting Skyggnis ná sambandi við geimverur.

 

Að hugarflugi loknu voru myndaðir vinnuhópar þar sem hver hópur valdi sér ákveðið viðfangsefni tengt skapandi iðnaði til frekari úrvinnslu.  Eftirfarandi voru viðfangsefni hvers hóps fyrir sig.

 

Hópur 1.

 

Norðurljósablús.

Norðurljósablúshátíðin verði þróuð og haldið áfram að vinna að henni.

Stefna að því að fá vel þekkta blúsara og hafa það að markmiði að frægir blúsarar biðji um að fá að koma.

Taka upp viðburði og setja á cd/dvd um leið og þeir gerast.

Koma upp norðurlandasamböndum.

 

Upplifðu sjálfan þig/ Find yourself.

Bjóða upp á náttúru-upplifunar pakka þar sem flest þau huglægu atriði sem fram komu í hugarflugi eru nýtt til að gera veru hér ógleymanlega.

 

Hópur 2.

 

Mikligarður.

Útfærsla á hugmynd um nýtingu Miklagarðs.

Að Mikligarður verði nýttur í margvíslegum tilgangi til að lokka ferðamenn og fleiri. Þar verði m.a. humarsafn þ.e. þar verði safnað saman öllu sem tilheyrir humri s.s. uppskriftum, sögum, fróðleik um veiði og vinnslu, þar verði lifandi humar og margt fleira. Búa til nokkurs konar humar kúltur.

 

Í Miklagarði verði listamanna-aðstaða þ.e. íbúð fyrir farandlistamenn.  Reynslan sýnir að þannig fyrirbæri smiti út frá sér og hafi margfeldisáhrif.

Að auki verði þar:

Lifandi sjávarafurðir

Kaffihús/krá/knæpa

Fiskbúð

Matsölustaður

Beituskúr

Minjagripasala

Aðstaða fyrir listamenn til að vinna við sína listsköpun

Æfingahúsnæði

 

Aðstaða sé ekki síður fyrir utanaðkomandi handverksfólk og listamenn  en heimamenn.

 

Hópur 3.

 

Hornfirskt skemmtikvöld.

Útfærsla á hugmyndinni hornfirskt skemmtikvöld.

Boðið verði uppá hornfirskan matseðil s.s. humar, lúru, ál, hreindýr, lamb með hornfirskum kartöflum og grænmeti.

Hornfirskir listamenn setji saman skemmtidagskrá.

70% líkur á að kvöldinu ljúki með norðurljósum

ef ekki þá höfum við eilífðarvélina til að hlaupa upp á.

 

Hestaferðir milli sýslumarka.

Boðið verði upp á hestaferðir milli sýslumarka þannig að riðið verði eftir fjörunni. Þarf að ríða yfir ósana en margir eru veikir fyrir því að sundríða. Á þennan hátt megi njóta mismunandi náttúru skaftafellssýslu og fjallahringsins.

 

Gönguferðir á og kringum jökul.

Boðið verði upp fjallaklifur, ísklifur, jurtaskoðun.

Útbúinn íshellir með veitingasölu/nota klakann/ísmola.

Sagðar ævintýrasögur af jökli.

 

Hópur 4.

 

Hlaupa í Skarðið

Á humarhátíð verði staðið fyrir íþróttaviðburði sem fólgin er í að hlaupa upp og niður skarðið.

 

 


 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica