Fréttir fruma

RF
RF
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins
Mynd 2 af 3
1 2 3

Leita eftir verkefnastjóra til að starfa á Hornafirði

29.03.2006

Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins (www.rf.is) er að leita eftir verkefnastjóra til að starfa á Hornafirði í nýrri starfsstöð sem stofnunin mun opna í Nýheimum. Um er að ræða nýtt starf sem unnið verður í nánum tengslum við starfsemi Frumkvöðlasetur Austurlands ehf. eða Frumuna.Hlutverk verkefnistjórans er að stjórna og vinna að verkefnum á vegum Rf. á Hornafirði en þau fela m.a. sér: umsjón með daglegum rekstri, öflun verkefna og áætlanagerð, samstarf við fyrirtæki og einstaklinga um verkefni, vinna við verkefni sem tengjast humarveiðum og vinnslu, kortlagning á tækifærum og kynna verkefni og tækifæri í umhverfinu. Umsækjendur þurfa að hafa lokið meistaraprófi í raunvísindum eða verkfræði.

Fyrirhuguð starfsemi verður með aðsetur í þekkingarsetrinu Nýheimum. Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins er sjálfstæð ríkisstofnun sem starfar samkvæmt lögum 64/1965 um rannsóknir í þágu atvinnuveganna og heyrir undir sjávarútvegsráðuneytið. Stefna Rf er að auka verðmæti sjávarfangs með rannsóknum, þróunarvinnu, miðlun þekkingar og ráðgjöf. Sérfræðisvið Rf eru m.a. vinnslutækni, líftækni, efna- og eðliseiginleikar matvæla, gæði og öryggi sjávarfangs, fóður og fóðurtækni í fiskeldi og umhverfisrannsóknir.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica