Fréttir fruma

Rannveig Einarsdóttir og Elín Sigríður Harðardóttir
Rannveig Einarsdóttir og Elín Sigríður Harðardóttir
Rannveig Einarsdóttir og Elín Sigríður Harðardóttir

Þróa og þjálfa vinnubrögð í gerð fræðslu- og upplýsingaskilta

15.02.2006



Eitt af þeim verkefnum sem fram hefur farið í Frumkvöðlasetrinu í Nýheimum nefnist Náttúrulega var tilgangur þess að þróa og þjálfa vinnubrögð í gerð fræðslu- og upplýsingaskilta. Jafnframt að tileinka sér notkun myndvinnslu og landupplýsingaforrits sem keypt var til verkefnisins. Unnin voru nokkur fræðslu og upplýsingaskilti fyrir Skógræktarfélag Austur-Skaftafellssýslu sem sett verða upp í landi félagsins að Haukafelli á Mýrum. Að verkefninu standa Rannveig Einarsdóttir og Elín Sigríður Harðardóttir. Í kjölfar þess að félagið fékk jákvæð svör um styrk frá Pokasjóði og Ferðamálaráði til að gera fræðslu- og upplýsingaskilti fyrir land félagsins, var ákveðið að hefja vinnu við gerð skiltanna. Lokið er grafískri vinnu við skiltin. Veturinn verður notaður til vinnu við smíðar og uppsetningu skiltanna. Texti á erlendum tungumálum verður á undirskilti sem hægt er að draga út undan aðalskilti. Skiltunum verður komið fyrir á steinum og trjám sem fyrir eru í landinu og yfirlitsskilti verður við aðkomu á þjónustuhúsi.

Vinna við prentun og smíðar verður samstarfsverkefni tveggja sprotafyrirtækja á Hornafirði og Skógræktarfélags Austur - Skaftafellssýslu.

Sjá skilti verkefni og myndir (pdf)

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica