Fréttir fruma

Á Hornafjarðarflugvelli
Á Hornafjarðarflugvelli
Á Hornafjarðarflugvelli
Mynd 1 af 2
1 2

Flugsamgöngur verði eins og best verður kosið

11.05.2005

Fyrsti fundur samgönguhóps innan ferðaþjónustu-klasans var haldin 19. apríl í Nýheimum. Byrjað var á að fara lauslega yfir þá vinnu sem búið var að vinna í klasa-verkefninu og skoða hvernig samgöngumál hafa bein áhrif á ferðaþjónustuna. Þá var á fundinum sérstaklega farið yfir flugsamgöngur því mjög mikilvægt er fyrir uppbyggingu ferðaþjónustunnar á svæðinu að flugsamgöngur verði eins og best verður kosið og þróun flugmála verði í samræmi við aðra þróun ferðaþjónustu á svæðinu. Fram kom í máli fundarmanna að frá árinu 2000?2004 hafi farþegum fækkað um 11.000 eða úr 20.000 farþegum niður í 9.000 farþega. Þessi þróun á sér stað á sama tíma og komum erlendra ferðamanna er að fjölga til svæðisins og landsins.

Fundarmenn voru sammála um að eftirfarandi þyrfti að gerast til að snúa þróuninni við:
Flugvöllur og öll aðstaða fyrir flugsamgöngur á jörðu niðri þurfa að vera í lagi og samstarf þarf að vera á milli aðila á staðnum og Flugmálastjórnar um uppbyggingu og viðhald flugvallarins. Sem dæmi um gott samstarf var nefnt samstarf hafnarnefndar og Siglingastofnunar.
Að í flugi til og frá Hornafirði verði að boðið upp á þægindi eins og tíðkast í almennu í farþegaflugi hér innanlands. Sá aðili sem sér um rekstur á flugi til og frá Hornafirði taki þátt í markaðssetningu og uppbyggingu á flugsamgöngum til og frá svæðinu.

Hugsanlegt er að leita þurfi nýrra leiða eins og hafa verið nefndar á Akureyri og Vestmanaeyjum en það er að heimamenn taki að sér rekstur og framkvæmdir við flugvöllinn. Það er mjög mikilvægt að stöðugt vinna eigi sér stað við úrbætur og framþróun í flugsamgöngum fyrir ferðaþjónustuaðila og samfélagið á Hornafirði. Þess vegna fer hópurinn fram á að sveitarstjórnarmenn og starfsmenn sveitarfélagsins komi að þessum málum með hópnum og beiti sér fyrir því að flugmálastjórn komi hingað til Hornafjarðar þar sem farið verður yfir stöðu og framtíð flugsamgangna hér á Hornafirði.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica