Fréttir fruma

Kynning á Frumunni.

Almennur kynningarfundur var haldin um starfsemi Frumunnar miðvikudaginn 16. mars í ráðstefnusal Nýheima.

18.03.2005

Almennur kynningarfundur var haldin um starfsemi Frumunnar miðvikudaginn 16. mars í ráðstefnusal Nýheima. Fundurinn var fjölmennur og Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra heiðraði félagið með nærveru sinni. Albert Eymundsson stjórnarformaður Frumunnar setti fundinn og í máli hans kom meðal annars eftirfarandi fram. ?Í mínum huga er það grundvallaratriði í nútímasamfélagi að búa til aðstæður sem sífellt örva okkur og minna á skyldur okkar að vera vakandi fyrir nýjum möguleikum í atvinnusköpun. Það er mjög auðvelt að gagnrýna allar nýjar framsæknar hugmyndir en eftir sem áður skiptir mestu máli að halda uppi jákvæðri og málefnalegri umræðu og á þann hátt skapa gott andrúmsloft og umhverfi sem virkar hvetjandi á einstaklinga sem hafa áræði til að takast á við ný viðfangsefni stór eða smá?.

Ari Þ. Þorsteinsson framkvæmdastjóri Frumunnar kynnti starfsemi félagsins. En þar kom meðal annars fram að Fruman fengið 28 formlegar fyrirspurnir um nýsköpunarverkefni og verið er að vinna að 11 verkefnum í Frumunni. Ennfremur sagði Ari að það að koma Frumunni á lappirnar hafi í sjálfu sér verið frumkvöðlaverkefni sem krafðist töluverðrar nýhugsunar, þar sem ekki var um hefðbundinn rekstur fyrirtækis að ræða með ákveðnar vörur og þjónustu. Fruman er að ljúka sínu öðru starfsári og búin að fara í gegnum það uppbyggingarstarf sem nauðsynlegt er við stofnun slíks félags. Í dag eigum við félag sem hefur unnið sér sess í samfélaginu og er tilbúið að takast á við og leiða frumkvöðla og nýsköpunarstarf í samfélaginu.

Einn gjörningur var framkvæmdur í lok kynningarinnar en það var að prófa epla flysjunar vél. Athuguð var virkni vélarinnar og eins hvort munur væri á að flysja rauð eða græn epli. Niðurstaðan var sú að vélin hentar einstaklega vel til að flysja græn epli. Hornfirska Álafélagið bauð fundarmönnum að smakka reyktan Hornfirskan ál og bera hann samann við Hollenskan kollaga en það var samdóma álit fundargesta að Hornfirski Állin væri mun bragðbetri.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica